Kristín svarar Sigmundi: Furðuleg blanda af samsæriskenningu og viðkvæmni

365
Auglýsing

Kristín Þor­steins­dótt­ir, rit­stjóri 365 miðla, segir Sig­mundi Davíð Gunn­laugs­syni for­sæt­is­ráð­herra vera töm „þessi furðu­lega blanda af sam­sær­is­kenn­inga­smíð og við­kvæmni“ og sú blanda hafi birst í grein ráð­herr­ans í Frétta­blað­inu á mið­viku­dag. Kristín svarar umræddri grein í leið­ara í blað­inu í dag.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra kall­aði tvo blaða­menn Frétta­blaðs­ins, þau Kol­bein Ótt­ars­son Proppé og Snærós Sindra­dótt­ur, full­trúa stjórn­ar­and­stöðu­flokka í kjall­ara­grein í Frétta­blað­inu á mið­viku­dag­inn.

Greinin fjallar að mestu um leið­rétt­ing­ar­að­gerðir rík­is­stjórn­ar­inn­ar, en í henni seg­ir hann meðal ann­ar­s að full­trúar stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna „hvort heldur þeir tjá sig á þingi eða á leið­ar­a­síðu Frétta­blaðs­ins, eiga erfitt með að sætta sig við vel­heppn­aða leið­rétt­ingu. Tveir hinna her­skárri skrifa um málið á síð­unni í gær. Stjórn­ar­and­stöðu­dálk­ur­inn „Frá degi til dags“ heldur fram þeim hreinu ósann­indum að leið­rétt­ingin renni að mestu til hátekju­fólks (raunin er þver­öfug -ólíkt 110% leið­inni) og í leið­ara er full­yrt að fjár­magn til leið­rétt­ing­ar­innar hafi ekki verið sótt til kröfu­hafa eins og lofað hafði ver­ið. Hvernig menn geta fengið þetta út er mér hulin ráð­gáta.“

Auglýsing

Dálk­inn „Frá degi til dags“, sem birt­ist á leið­ar­a­síðu Frétta­blaðs­ins á þriðju­dag, skrif­aði Snærós Sindra­dótt­ir. Leið­ara blaðs­ins þann dag ­skrif­aði Kol­beinn Ótt­ars­son Proppé.

„Fjöl­margir blaða­menn starfa hjá 365. Þar fer mis­lit hjörð með mis­mun­andi skoð­an­ir. Eftir því sem flóran er fjöl­breytt­ari er von á betri árangri. Margir skrifa pistil­inn Frá degi til dags. Aldrei hefur nokk­urt þeirra verið spurt um hvað eða hvort yfir höfuð þau kjósa. Óger­legt er að skipa þessu fólki á einn póli­tískan bás,“ skrifar Kristín meðal ann­ars í dag.

Hún segir að fag­fólk láti ekki skoð­anir lita umfjöllun sína í frétt­um. „Að halda öðru fram er atvinnuróg­ur. Um dálka­skrif og leið­ara gilda önnur lög­mál. Maður skyldi ætla að for­sæt­is­ráð­herra þekkti þau.“

Þá segir Kristín að Sig­mundur Davíð og flokks­systk­ini hans hafi lengi haft horn í síðu Rík­is­út­varps­ins og því sé Frétta­blaðið ekki eini mið­ill­inn sem flæk­ist fyrir for­sæt­is­ráð­herra.

„Við afsögn Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur dró Sig­mundur heldur ekki þann lær­dóm að vanda þyrfti með­ferð valds, heldur að ástæða væri til að hafa áhyggjur af umræð­unni – eins og umræðan hefði brotið á hæl­is­leit­end­un­um. Sam­flokks­menn hans kynda und­ir. Karl Garð­ars­son alþing­is­maður segir for­sæt­is­ráð­herra verða fyrir póli­tísku ein­elti og hat­ursum­ræð­u.“

Þetta hátta­lag segir Kristín und­ar­legt, ráð­herr­ann hafi mörg vopn á hendi til að snúa aðstæðum sér í vil. „Sig­mundur er sá íslenski stjórn­mála­maður sem helst getur stært sig af því að standa við stóru orð­in. Vilji hann vinna annan kosn­inga­sigur þarf hann að minna kjós­endur á eigin orð­heldni. Það hlýtur að vera væn­legra til árang­urs en að kveinka sér stans­laust undan umræð­unn­i.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None