Kristján Guy Burgess hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar. Í tilkynningu frá flokknum kemur fram að Kristján hafi verið valinn úr stórum hópi umsækjenda til að "stýra daglegum rekstri flokksins og hafa yfirumsjón með málefnastarfi og stefnumótun". Síðasti framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar var Þórunn Sveinbjarnardóttir sem hætti störfum í maí til að gerast formaður Bandalags háskólamanna, BHM.
Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, segir að það hafi ekki verið auðvelt að velja úr þeim hópi sem gaf kost á sér í starfið. "Það er mikill fengur að Kristjáni. Hann hefur skýra sýn um hvernig best er hægt að auka áhrif umbótasinnaðra afla og hann hefur sýnt í fyrri störfum að hann hefur lag á að vinna með fólki, leysa flókin verkefni og koma hlutum í verk. Við hlökkum til samstarfsins."
Kristján hefur að undanförnu starfað fyrir Atlantshafsbandalagið sem fulltrúi þess gagnvart Sameinuðu þjóðunum í New York. Árin 2009-2013 var hann aðstoðarmaður utanríkisráðherra og frá 2005-2009 rak hann ráðgjafarfyrirtæki í alþjóðamálum. Hann býr yfir áralangri reynslu af störfum við fjölmiðla og hefur komið að margvíslegu kosningastarfi. Kristján er með BA próf í sagnfræði og heimspeki frá Háskóla Íslands og meistarapróf í alþjóðastjórnmálum og alþjóðalögum frá háskólum í London og Kosta Ríka. Hann mun hefja störf 1. nóvember.