Kristján Þórður gefur ekki kost á sér í forsetaembættið

Starfandi forseti ASÍ hyggst ekki gefa kost á sér til þess að leiða sambandið á þingi ASÍ í október. Hann ætlar að einbeita sér að verkefnum Rafiðnaðarsambands Íslands, þar sem hann gegnir formennsku.

Kristján Þórður Snæbjarnarson
Kristján Þórður Snæbjarnarson
Auglýsing

Krist­ján Þórður Snæ­bjarn­ar­son, sem verið hefur for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands frá því að Drífa Snæ­dal sagði af sér emb­ætt­inu í byrjun ágúst­mán­að­ar, ætlar ekki að gefa kost á sér til þess að leiða sam­bandið áfram. Frá þessu sagði hann í færslu á Face­book í morg­un, en áður hafði hann sagt að hann væri að íhuga fram­boð til for­seta á þingi ASÍ, sem fram fer í októ­ber.

Krist­ján Þórð­ur, sem er for­maður Raf­iðn­að­ar­sam­bands Íslands, ætlar þó áfram að gefa kost á sér til for­ystu í ASÍ, sem 1. vara­for­seti.

Í færslu sinni segir hann að það hafi reynst áhuga­vert verk­efni að starfa sem for­seti ASÍ und­an­far­inn tæpan mán­uð.

„Það að stuðla að auknu sam­tali á milli ólíkra hópa innan ASÍ hefur verið mjög gef­andi og aug­ljóst að verka­lýðs­hreyf­ingin á spenn­andi tíma fyrir hönd­um. Ég hef átt mörg góð sam­töl við fólk víða í sam­fé­lag­inu um þetta verk­efni og fengið miklar hvatn­ingar fram á við. Ég hef því þurft að gera upp við mig hvað ég hygg­ist gera á næstu mán­uðum en sú ákvörðun er að sjálf­sögðu veru­lega flókin þar sem verk­efnin eru spenn­andi bæði það að starfa fyrir Raf­iðn­að­ar­sam­band Íslands sem og að vinna fyrir stærstu heild­ar­sam­tök launa­fólks á íslenskum vinnu­mark­að­i,“ segir Krist­ján Þórður í færslu sinni.

Hann bætir því við að verk­efnin framundna hjá Raf­iðn­að­ar­sam­band­inu séu gríð­ar­lega stór og gef­andi, bæði gerð kjara­samn­inga auk ann­arra verk­efna í dag­legu starfi sam­bands­ins sem komi inn á hans borð.

Auglýsing

„Ég hef því ákveðið að gefa ekki kost á mér í emb­ætti for­seta ASÍ að svo stöddu heldur ein­beita mér að verk­efnum RSÍ. Ég mun þó áfram gefa kost á mér til þátt­töku í for­ystu ASÍ sem 1. vara­for­seti enda mikil þörf á að tryggja að rödd iðn- og tækni­fólks heyr­ist innan heild­ar­sam­tak­anna,“ skrifar Krist­ján Þórð­ur.

Með þess­ari ákvörðun bæt­ist Krist­ján Þórður í þann hóp verka­lýðs­for­ingja sem hafa úti­lokað að bjóða sig fram til for­seta­emb­ættis ASÍ.

Áður voru þau Sól­veig Anna Jóns­dóttir for­maður Efl­ingar og Vil­hjálmur Birg­is­son for­maður Starfs­greina­sam­bands­ins og Verka­lýðs­fé­lags Akra­ness búin að til­kynna opin­ber­lega að þau hygg­ist ekki bjóða sig fram til emb­ætt­is­ins.

Sá síð­ar­nefndi sagði við það tæki­færi að hann myndi styðja Ragnar Þór Ing­ólfs­son for­mann VR til for­ystu í Alþýðu­sam­band­inu, en enn sem komið er hefur Ragnar Þór ekki stað­fest að hann ætli að gefa kost á sér í for­seta­emb­ætt­ið.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokki