Kröfuhafar vilja Jóhannes Rúnar og Óttar Pálsson í stjórn eftir nauðasamning

jrj.jpg
Auglýsing

Þeir Jóhannes Rúnar Jóhanns­son, sem situr í slita­stjórn Kaup­þings, og Óttar Páls­son, hæsta­rétt­ar­lög­maður og einn eig­enda lög­fræði­stof­unnar Logos, munu að öllum lík­indum taka sæti í stjórn Kaup­þings eftir að nauða­samn­ingur slita­bús hans verður sam­þykkt­ur. Í Morg­un­blað­inu er greint frá því að lyk­il­að­ilar í hópi kröfu­hafa Kaup­þings hafi lagt fram til­lögu þess efn­is, en alls verða fimm ein­stak­lingar í stjórn­inni.

Kaup­þing hefur þegar sam­þykkt að greiða 120 millj­arða króna í svo­nefnt stöð­ug­leika­fram­lag til rík­is­sjóðs. Í stað­inn á búið að fá und­an­þágu frá fjár­magns­höftum til að ljúka nauða­samn­ingi sínum og greiða kröfu­höfum út það fé sem safn­ast hefur upp í slita­með­ferð bank­ans sem staðið hefur yfir frá haustinu 2008. Umtals­verðar eignir eru enn í slita­búi Kaup­þings sem eftir á að umbreyta í lausafé og því mun vinnu við umsýslu þeirra eigna ekki ljúka þegar nauða­samn­ing­ur­inn liggur fyr­ir. Á meðal þeirra eigna sem Kaup­þing heldur á sem stendur er hinn íslenski Arion banki.

Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans eru mun meiri líkur en minni á því að Kaup­þing fái und­an­þágu frá fjár­magns­höftum og fái þar með að ljúka nauða­samn­ingi. Sömu sögu er að segja af slita­búi Lands­bank­ans en meiri óvissa ríkir um slitabú Glitn­is, sem á að greiða stærstan hluta stöð­ug­leika­fram­lags til rík­is­sjóðs, alls um 200 millj­arða króna.

Auglýsing

Nauð­syn­legt að fá Íslend­inga



Í Morg­un­blað­inu segir að stærstu kröfu­hafar slita­bús Kaup­þings, þeir hinir sömu og sömdu við íslensk stjórn­völd um greiðslu stöð­ug­leika­fram­lags til að kom­ast hjá greiðslu stöð­ug­leika­skatts, stýri vinnu við skipun stjórn­ar­inn­ar. Þar segir að ­kröfu­hafar telji nauð­syn­legt að velja tvo stjórn­ar­menn inn í félagið "sem hafi yfir­sýn og þekk­ingu á starf­semi þess og að þar hafi íslenskir sér­fræð­ingar for­skot á aðra sem til greina komi í stjórn­ar­sæt­in".

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None