Knattspyrnusamband Ísland hefur samið við ráðgjafarfyrirtækið Borgarbrag um að leiða vinnu við gerð hagkvæmniskönnunar á hugsanlegri uppbyggingu á nýjum leikvangi í Laugardal. Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu KSÍ. Pétur Marteinsson, athafnamaður og fyrrverandi knattspyrnumaður, mun vera í forsvari fyrir verkefnið, en hann er annar eigenda Borgarbrags. Guðmundur Kristján Jónsson er framkvæmdastjóri félagsins.
„Frábær árangur kvenna- og karlalandsliða Íslands í knattspyrnu síðustu misseri hefur beint sjónum fjölmiðla og almennings að aðstöðu knattspyrnuhreyfingarinnar í Laugardal,“ segir í frétt KSÍ um málið. „Á sama tíma og Knattspyrnusamband Íslands fagnar þeirri miklu umræðu sem hefur átt sér stað síðustu daga í tengslum við mögulega stækkun Laugardalsvallar vill sambandið ítreka að verkefnið er á frumstigi og ótal spurningum enn ósvarað um hvort raunhæft sé að ráðast í verkefni af þessari stærðargráðu á Íslandi.“
Sambandið segist einnig vilja árétta að fjölmargir hagsmunaðilar eigi hlut að máli. Þá sé eignarhald vallarins að stærstum hluta í höndum Reykjavíkurborgar. „Eðli málsins samkvæmt verður ekki aðhafst í málinu nema með samþykki borgarinnar og að höfðu samráði við aðra hagsmunaaðila.“
Í ljósi þess hversu umfangsmikið og flókið verkefnið er hefur KSÍ fengið Borgarbrag til þess að skoða hugsanlega uppbyggingu. Frumniðurstöður úr hagkvæmniskönnun á að liggja fyrir í byrjun desember á þessu ári.