Í samræmi við stefnu ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur, sem sett var fram í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarflokkanna þriggja, hefur umhverfis- og auðlindaráðuneytið birt í samráðsgátt stjórnvalda áform um niðurfellingu laga um leit, rannsóknir og vinnslu kolvetnis sem felur í sér bann við leit og vinnslu olíu í íslenskri efnahagslögsögu.
Í stjórnarsáttmála Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna frá því í nóvember er sett fram það markmið að Ísland nái kolefnishlutleysi og fullum orkuskiptum eigi síðar en árið 2040 og verði þá óháð jarðefnaeldsneyti fyrst ríkja. Ríkisstjórnin muni ekki gefa út nein leyfi til olíuleitar í efnahagslögsögu Íslands.
Samkvæmt lögum nr. 73/1990 um eignarrétt íslenska ríkisins að auðlindum hafsbotnsins má enginn leita að efnum til hagnýtingar á, í eða undir hafsbotninum utan netlaga í landhelgi, efnahagslögsögu og landgrunni utan netlaga nema að fengnu skriflegu leyfi Orkustofnunar. Með lögum nr. 13/2001 um leit, rannsóknir og vinnslu kolvetnis var í löggjöfinni settur rammi um leyfisveitingu fyrir leit, rannsóknir og vinnslu kolvetnis.
Þannig gerir núgildandi löggjöf ráð fyrir að hægt sé að uppfylltum skilyrðum að fá útgefið leyfi til rannsóknar og vinnslu kolvetnis í efnahagslögsögu Íslands.
Engin olíuleit stunduð í dag
Nú er áformað að fella brott lög nr. 13/2001 um leit, rannsóknir og vinnslu kolvetnis í takti við þá stefnu stjórnvalda að gefa ekki út leyfi til olíuleitar í efnahagslögsögu Íslands. Til samræmis við þá stefnu er ennfremur áformað að „orða með jákvæðum hætti“, líkt og segir í gögnum sem birt hafa verið í samráðsgátt, bann við leit og vinnslu kolvetnis í efnahagslögsögu Íslands í lögum nr. 73/1990 um eignarrétt íslenska ríkisins að auðlindum hafsbotnsins.
Engir aðilar stunda í dag leit, rannsókn eða vinnslu kolvetnis í efnahagslögsögunni.
„Áformin eru í samræmi við stefnu stjórnvalda um umhverfisvernd og sjálfbæra þróun. Þar sem áformin fela í sér að lagt verið bann við starfsemi sem ekki er í reynd stunduð (leit og vinnsla olíu) hafa áformin ekki bein áhrif á umhverfi og sjálfbæra þróun nema að því leyti að þeim er ætlað að tryggja að ekki verði teknar ákvarðanir um að heimila tiltekna starfsemi sem er til þess fallin að hafa neikvæð áhrif á umhverfi og sjálfbæra þróun,“ segir í gögnum ráðuneytisins í samráðsgáttinni.