Arðsemi Landsbankans langt frá markmiði

Arðsemi eiginfjár Landsbankans var 4,1 prósent á fyrri hluta þessa árs samanborið við 10,8 prósent á sama tímabili í fyrra. Starfsfólki bankans hefur fækkað um hátt í 60 á undanförnum 12 mánuðum.

Höfuðstöðvar Landsbankans eru við Austurstræti 11.
Höfuðstöðvar Landsbankans eru við Austurstræti 11.
Auglýsing

Lands­bank­inn hagn­að­ist um tæpa 5,6 millj­arða króna á fyrri helm­ingi þessa árs, þar af hagn­að­ist bank­inn um 2,3 millj­arða á öðrum árs­fjórð­ungi. Hagn­aður bank­ans dregst veru­lega saman á milli ára en á fyrri hluta árs­ins 2021 hagn­að­ist bank­inn um 14,1 millj­arð króna. Lands­bank­inn birti upp­gjör sitt fyrir fyrstu sex mán­uði árs­ins í dag.

Arð­semi eig­in­fjár á tíma­bil­inu var 4,1 pró­sent sem er tölu­vert undir 10 pró­senta arð­sem­is­mark­miði bank­ans. Í til­kynn­ingu frá bank­anum segir að þetta skýrist einkum vegna lækk­unar á gang­virði hluta­bréfa­eignar bank­ans. Þar af nam arð­semi eig­in­fjár 3,5 pró­sentum á öðrum árs­fjórð­ungi. Á sama árs­fjórð­ungi í fyrra var arð­semi eig­in­fjár 9,8 pró­sent og á fyrri hluta árs­ins 2021 nam hún 10,8 pró­sent­um.

Fjórð­ungs aukn­ing í þjón­ustu­tekjum

Rekstr­ar­tekjur bank­ans lækka tals­vert milli ára. Þær námu rúmum 22,8 millj­örðum á fyrri helm­ingi þessa árs sam­an­borið við tæpa 30,3 millj­arða á sama tíma­bili í fyrra. Hreinar þjón­ustu­tekjur bank­ans námu rúmum 5,4 millj­örðum króna á fyrri hluta þessa árs og juk­ust um 24 pró­sent á milli ára. Aukn­ingin skýrist fyrst og fremst af vax­andi umsvifum í eigna­stýr­ingu og mark­aðsvið­skipt­um, að því er fram kemur í til­kynn­ingu. Hreinar vaxta­tekjur juk­ust sömu­leið­is. Þær námu rúmum 21,4 millj­örðum á tíma­bil­inu sem er 13 pró­senta aukn­ing á milli ára.

Auglýsing

„Aðrar rekstr­ar­tekjur voru nei­kvæðar um 4,0 millj­arða króna en voru jákvæðar um 6,9 millj­arða króna á sama tíma­bili árið 2021. Virð­is­breyt­ingar útlána eru jákvæðar um 43 millj­ónir króna það sem af er ári sam­an­borið við jákvæðar virð­is­breyt­ingar útlána upp á 2,8 millj­arða króna á sama tíma á síð­asta ári,“ segir í til­kynn­ingu bank­ans.

Starfs­fólki hefur fækkað um tæp­lega 60

Kostn­aður bank­ans hefur lækkað lít­il­lega frá því í fyrra. Kostn­aður vegna launa og launa­tengdra gjalda fer úr tæpum 7,5 millj­örðum króna á fyrri helm­ingi árs­ins 2021, niður í rúma 7,3 millj­arða króna. Tals­vert hefur fækkað í starfs­liði bank­ans en stöðu­gildi í lok júní voru 786 sam­an­borið við 844 á sama tíma í fyrra.

Annar rekstr­ar­kostn­aður er sá sami milli ára, rúm­lega 4,5 millj­arð­ar. Sam­tals lækkar rekstr­ar­kostn­aður því lít­il­lega milli ára. Kostn­að­ar­hlut­fallið hækkar aftur á móti úr 43,7 pró­sentum á fyrri helm­ing árs­ins í fyrra í 52 pró­sent á fyrri helm­ingi árs­ins í ár. Hækkun hlut­falls­ins skýrist af lægri tekj­um.

Útlán juk­ust um 57,9 millj­arða á tíma­bil­inu

Eignir bank­ans námu 1.728 millj­örðum króna í lok júní og hafa lækkað um 1,7 millj­arða síð­asta árið. „Út­lán juk­ust aftur á móti um 57,9 millj­arða króna á fyrri helm­ing árs­ins 2022. Í lok fyrri helm­ings árs­ins 2022 voru inn­lán frá við­skipta­vinum 935 millj­arðar króna, sam­an­borið við 900 millj­arða króna í árs­lok 2021, og höfðu því auk­ist um 35 millj­arða króna,“ segir í til­kynn­ingu bank­ans.

Eigið fé bank­ans var 267,7 millj­arðar við lok júní og eig­in­fjár­hlut­fall 24,9 pró­sent. Það hefur lækkað frá lokum síð­asta árs en þá var það 26,6 pró­sent.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent