Landsbankinn hagnast um 21,6 milljarða á níu mánuðum

Landsbankinn hagnaðist um 7,5 milljarða á þriðja ársfjórðungi og alls um 21,6 milljarða á fyrstu níu mánuðum ársins.

Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans.
Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans.
Auglýsing

Hagn­aður Lands­bank­ans á þriðja árs­fjórð­ungi, frá júlí fram í lok sept­em­ber, nam 7,5 millj­örðum króna. Alls hagn­að­ist bank­inn um 21,6 millj­arða á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og segir í til­kynn­ingu bank­ans að jákvæðar virð­is­breyt­ing­ar, sökum þess að efna­hags­legar afleið­ingar heims­far­ald­urs hafi verið væg­ari en gert var ráð fyr­ir, séu stór þáttur í góðri afkomu bank­ans það sem af er ári.

Í upp­gjörstil­kynn­ingu bank­ans, sem send var út í dag, kemur fram að arð­semi eig­in­fjár bank­ans hafi verið 10,9 pró­sent á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og að hreinar þjón­ustu­tekjur hafi auk­ist um 22 pró­sent á milli ára, sem sagt er einkum vegna vax­andi umsvifa í eigna­stýr­ingu og mark­aðsvið­skipt­um.

Kostn­að­ar­hlut­fall bank­ans, kostn­aður hans sem hlut­fall af tekj­um, var 37,9 pró­sent á síð­asta árs­fjórð­ungi og er 41,7 pró­sent á fyrstu níu mán­uðum árs­ins. Lilja Björk Ein­ars­dóttir banka­stjóri segir í frétta­til­kynn­ingu bank­ans að hlut­fall kostn­aðar af tekjum hjá Lands­bank­anum sé „með því lægsta sem þekk­ist hjá bönkum í Evr­ópu.“

Eigið fé Lands­bank­ans nam 275,3 millj­örðum króna í lok sept­em­ber og eig­in­fjár­hlut­fallið var 24,9 pró­sent. Heild­ar­eignir bank­ans á sama tíma­punkti námu 1.718 millj­örðum króna.

40 pró­sent nýrra óverð­tryggðra lána með fasta vexti

Sam­kvæmt til­kynn­ingu bank­ans er mark­aðs­hlut­deild Lands­bank­ans á ein­stak­lings­mark­aði 39 pró­sent og hefur aldrei verið meiri. Hið sama er sagt um hlut­deild bank­ans í íbúða­lán­um, en hún er 28,7 pró­sent.

Auglýsing

Útlán bank­ans juk­ust um 103 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2021. Útlán til ein­stak­linga juk­ust um 110 millj­arða króna en útlán til fyr­ir­tækja dróg­ust saman um 7 millj­arða króna.

Fram kemur í til­kynn­ingu bank­ans að um 93 pró­sent af þeim nýju íbúða­lánum sem bank­inn veitir séu óverð­tryggð og að tæp­lega 40 pró­sent af nýjum lánum séu nú með fasta vexti.

„Við sjáum skýrt og greini­lega að fólk kýs í auknum mæli að festa vext­ina. Við höfum ein­faldað við­skipta­vinum þá aðgerð og það er hægt að festa vext­ina með hnappi í Lands­banka­app­in­u,“ er haft eftir Lilju Björk í til­kynn­ingu bank­ans.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent