Landsbankinn ríður á vaðið og hækkar vexti á íbúðalánum um 0,5 prósentustig

Viðbúið var að bankar landsins myndu hækka vexti á íbúðalánum í kjölfar þess að Seðlabanki Íslands hækkaði stýrivexti um 0,75 prósentustig í síðustu viku. Það hefur nú raungerst.

img_3067_raw_1807130203_10016471243_o.jpg
Auglýsing

Lands­bank­inn hefur til­kynnt að hann hækki breyti­lega vexti á óverð­tryggðum íbúða­lánum um 0,5 pró­sentu­stig. Vext­irnir verða 4,7 pró­sent eftir breyt­ing­una en bank­inn ætlar ekki að breyta föstum vöxtum á óverð­tryggðum íbúða­lán­um. Þeir verða áfram þannig að á fest­ingu til þriggja ára eru fimm pró­sent vextir upp að 50 pró­sent veð­setn­ingu, 5,20 pró­sent að láni milli 50 og 70 pró­sent veð­setn­ingu og 6,2 pró­sent vöxtum þaðan og upp í 85  pró­sent veð­setn­ingu. Þá er hægt að festa vext­ina í fimm ár með 0,2 pró­sentu­stiga hærri vöxt­u­m. 

Lands­bank­inn, sem er í eigu íslenska rík­is­ins, er fyrstur kerf­is­lega mik­il­vægu bank­anna þriggja til að hækka íbúða­lána­vexti í febr­ú­ar. Búast má við því að hinir tveir, Íslands­banki og Arion banki, til­kynni um vaxta­hækkun fljót­lega. 

Hækk­unin er gerð í kjöl­far þess að pen­inga­­stefn­u­­nefnd Seðla­­banka Íslands ákvað að hækka stýri­vexti bank­ans í 2,75 pró­­sent í síð­ustu viku. Um er að ræða hækkun á 0,75 pró­­sent­u­­stigum frá því sem áður var og alls hafa vextir hækkað um tvö pró­­sent­u­­stig frá því í maí í fyrra, þegar vaxta­á­kvörð­un­­ar­­ferli Seðla­­banka Íslands hófst.

Í yfir­­lýs­ingu nefnd­­ar­innar sagði að sam­­kvæmt nýrri þjóð­hags­­spá Seðla­­bank­ans sem birt var í febr­­ú­­ar­hefti Pen­inga­­mála, var hag­vöxtur um einu pró­­sent­u­­stigi meiri á síð­­asta ári en spáð var í nóv­­em­ber eða um 4,9 pró­­sent. „Spáð er svip­uðum hag­vexti í ár. Störfum hefur haldið áfram að fjölga og atvinn­u­­leysi að minnka og er áætlað að fram­leiðsluslak­inn sem mynd­að­ist í kjöl­far COVID-19-far­­sótt­­ar­innar sé horf­inn. Óvissa er hins vegar enn mik­il.“

Auglýsing
Verð­bólgu­horfur hafi hins vegar versnað tölu­vert frá síð­­asta fundi nefnd­­ar­innar og mæld­ist verð­­bólga 5,7 pró­­sent í jan­ú­­ar. Und­ir­liggj­andi verð­­bólga hefur einnig auk­ist og er talin vera ríf­­lega fjögur pró­­sent. Þá hafa verð­­bólg­u­vænt­ingar á suma mæli­kvarða hækk­­að. „Hækkun hús­næð­is­verðs vegur þungt en aðrir inn­­­lendir kostn­að­­ar­liðir hafa einnig hækk­­að. Við bæt­ist hækkun alþjóð­­legs olíu- og hrá­vöru­verðs. Sam­­kvæmt spá Seðla­­bank­ans eru horfur á að verð­­bólga verði 5,8 pró­ent á fyrsta fjórð­ungi árs­ins og yfir 5 pró­­sent fram eftir þessu ári. Gert er ráð fyrir að verð­­bólga hjaðni þegar hægir á verð­hækkun hús­næðis og alþjóð­­legar verð­hækk­­­anir fjara út en að hún verði ekki komin að mark­miði fyrr en undir lok spá­­tím­ans. Pen­inga­­stefn­u­­nefnd ítrekar að hún mun beita þeim tækjum sem hún hefur yfir að ráða til að tryggja að verð­­bólga hjaðni aftur í mark­mið innan ásætt­an­­legs tíma.“

Reynt að hemja hækkun á íbúða­verði

Hækkun íbúða­verðs er meg­in­drif­­kraft­­ur­inn i hærri verð­­bólgu, sem stýri­vext­irnir eiga að reyna að berja nið­­ur. Án þess væri verð­­bólgan 3,7 pró­­sent en ekki 5,7 pró­­sent.

Í mán­að­­ar­­skýrslu Hús­næð­is- og mann­­virkja­­stofn­unar (HMS) um þróun hús­næð­is­­mark­að­­ar­ins sem birt var í síð­ustu viku kom, fram að ekk­ert væri að draga úr verð­hækk­­un­­um. Íbúða­verð heldur þvert á móti áfram að hækka. Nú mælist hækk­­unin 16,6 pró­­sent síð­­ast­liðið ár og með­­al­­kaup­verð hefur hækkað um fimm millj­­ónir króna á síð­­­ustu tveimur mán­uðum á höf­uð­­borg­­ar­­svæð­inu. Það var 68,2 millj­­ónir króna í des­em­ber 2021 en 63,2 millj­­ónir króna í októ­ber sama ár. Fram­­boð á íbúðum heldur á sama tíma áfram að drag­­ast sam­­an. Í byrjun febr­­úar 2020 voru 1.031 íbúð til sölu en til sam­an­­burðar voru þær nálægt fjögur þús­und í maí 2020. Íbúðum til sölu hefur því fækkað um 74 pró­­sent á þeim tíma. Mestur er sam­­drátt­­ur­inn á höf­uð­­borg­­ar­­svæð­inu en þar voru ein­ungis 440 íbúðir til sölu í byrjun yfir­stand­andi mán­að­­ar. Fram­­boðið hefur dreg­ist saman um 27 pró­­sent á tveimur mán­uð­­um.

Fram­­boð af ódýrum íbúðum á höf­uð­­borg­­ar­­svæð­inu er sér­­stak­­lega lít­ið. Fjöldi íbúða sem eru með ásett verð á bil­inu 30-40 millj­­ónir króna eru nú aðeins 26 tals­ins eða um tíu pró­­sent af því sem þær voru í upp­­hafi maí 2020. Þá var enn eitt metið slegið í des­em­ber þegar 39,6 pró­­sent allra íbúða í land­inu seld­ust yfir ásettu verði.

Eykur greiðslu­­byrði heim­ila

Í skýrslu HMS sagði að greiðslu­­byrði óverð­­tryggðra lána gæti hækkað á næst­unni vegna vaxta­breyt­inga. „Miðað við lægstu vexti á óverð­­tryggðum lánum hjá bönk­­unum er greiðslu­­byrði lána um 42 þ.kr. fyrir hverjar 10 m.kr. sem teknar eru að láni. Hækki stýri­vextir um 0,5-0,75 pró­­sent­u­­stig gæti greiðslu­­byrðin hækkað í 44-47 þ.kr. en það fer þó eftir því að hversu miklu leiti hækkun stýri­­vaxta skilar sér í hækkun vaxta á íbúða­lán­­um. Greiðslu­­byrði óverð­­tryggðra lána gæti því hækkað um allt að 18 þ.kr. á mán­uði fyrir heim­ili sem er með 40 m.kr. íbúða­lán.“

Alls var heild­­ar­um­­fang óverð­­tryggðra íbúða­lána heim­ila hér­­­lendis 1.130 millj­­arðar króna í lok sept­­em­ber í fyrra. Alls 700 millj­­arðar króna af óverð­­tryggðum lánum voru með breyt­i­­lega vexti, eða 62 pró­­sent þeirra. Það þýðir að þegar Seðla­­bank­inn hækkar stýri­vexti, og lána­lán­veit­endur hækka í kjöl­farið íbúða­lána­vexti í takti við það, þá annað hvort hækka afborg­­anir þeirra sem eru með slík lán umtals­vert eða sá hluti þeirra sem fer í að greiða vexti frekar en að greiða niður lánið dregst sam­­an.

Mik­ill hagn­aður meðal ann­ars til­kom­inn vegna íbúða­lána

Kerf­is­lega mik­il­vægu bank­arnir þrír högn­uð­ust um 81,2 millj­arða króna í fyrra. Það er um 170 pró­­sent meiri hagn­aður en þeir skil­uðu árið 2020. Bank­­arnir þrír urðu allir til á grund­velli neyð­­ar­laga sem sett voru haustið 2008, í kjöl­far banka­hruns­ins. Þá voru eignir fall­inna banka fluttar með handafli yfir á nýjar kenn­i­­töl­­ur. Sam­an­lagður hagn­aður stóru bank­anna frá hruni er 750,2 millj­­arðar króna. Mestur var hann árið 2015, en þá lit­aði umfangs­­mikil eigna­­sala upp­­­gjör­ið.

Hinn mikli hagn­aður þeirra í fyrra en meðal ann­ars til­kom­inn vegna þess að útlána­söfn þerira hafa stækkað mik­ið, aðal­lega vegna þess að þeir hafa aukið við lán­veit­ingar til íbúð­ar­kaupa. Hlut­deild banka í útistand­andi íbúða­lánum er nú um 70 pró­­­sent en var 55 pró­­­sent í byrjun árs 2020.

Vaxta­munur bank­anna þriggja var á bil­inu 2,3-2,8 pró­­sent á síð­asta ári, sem er mjög svipað og hann var á árinu 2020, þegar hann var 2,7 pró­­sent að með­­al­tali. Mestur var hann hjá Arion banka en minnstur hjá Lands­bank­an­um. Til sam­an­­burðar þá var vaxta­munur nor­ræna banka sem eru svip­aðir að stærð og þeir íslensku 1,68 pró­­sent í fyrra. Hjá stórum nor­rænum bönkum er hann undir einu pró­­senti, sam­­kvæmt því sem fram kemur í árs­­riti Sam­­taka fjár­­­mála­­fyr­ir­tækja.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent