Sparisjóður Norðurlands gerði í dag samkomulag við Landsbankann um að hafinn verði undirbúningur að samruna þessara tveggja fjármálafyrirtækja undir merkjum Landsbankans. Samkomulagið gerir ráð fyrir að stofnfjáreigendur sparisjóðsins fá 594 milljónir króna, að gefinni áreiðanleikakönnun. Allar eignir og skuldir sparisjóðsins renna inn í Landsbankann, ef af samrunanum verður. Hann er meðal annars háður samþykki FME og Samkeppniseftirlitsins. Eigendur sparisjóðsins eru alls 361 talsins. Þar af á Ríkissjóður Íslands 79,2 prósent, Tryggingasjóður sparisjóða á 14,9 prósent, Eignasafn Seðlabanka Íslands á 1,7 prósent og Rekstrarfélag verðbréfasjóða ÍV á 1,7 prósent.
Stjórn sparisjóðsins sendi frá sér tilkynningu í dag þar sem greint er frá yfirtöku Landsbankans. „Fram hefur komið að eiginfjárhlutfall Sparisjóðs Norðurlands var 8,2% í árslok 2014 sem er undir þeirri eiginfjárkröfu sem Fjármálaeftirlitið gerir til sparisjóðsins. Rekstur sjóðsins hefur verið viðunandi en niðurfærslur eigna í kjölfar endurmats þeirra hafa valdið neikvæðri rekstrarafkomu. Í ljósi þessa hefur stjórn sparisjóðsins að undanförnu leitað leiða til að tryggja hag viðskiptavina sparisjóðsins, kröfuhafa hans og stofnfjárhafa,“ segir í tilkynningunni.
„Í samkomulaginu er gert ráð fyrir að stofnfjáreigendur í sparisjóðnum fái endurgjald fyrir stofnfjárhluti sína með þegar útgefnum hlutum í Landsbankanum. Heildarendurgjald Landsbankans til stofnfjárhafa yrði að verðmæti 594 milljónir króna, þó að teknu tilliti til niðurstöðu áreiðanleikakönnunar. Við samrunann rynnu allar eignir og skuldbindingar sparisjóðsins inn í Landsbankann og hann tæki við rekstri allra útibúa sjóðsins. Samruni er m.a. háður lögbundnum fyrirvörum um samþykki Fjármálaeftirlitsins og Samkeppniseftirlitsins.
Stjórn Sparisjóðs Norðurlands telur að með þessu samkomulagi sé þeirri óvissu eytt sem sjóðurinn hefur staðið frammi fyrir og hagsmunir viðskiptavina, kröfuhafa og stofnfjárhafa tryggðir til framtíðar. Auk þess telur stjórn að með þessu verði tryggð öflug fjármálaþjónusta á svæði sparisjóðsins til hagsbóta fyrir fyrirtæki og íbúa.“