Landsvirkjun hagnaðist um 19 milljarða króna á fyrstu sex mánuðum ársins

Hagnaður Landsvirkjunar á fyrri hluta yfirstandandi árs var næstum jafn mikill og hagnaður fyrirtækisins var allt árið í fyrra. Það hefur aldrei fengið hærra verð á fyrstu sex mánuðum árs fyrir orku til stórnotenda og nú.

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar.
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar.
Auglýsing

Lands­virkj­un, stærsta orku­fyr­ir­tæki lands­ins sem er að öllu leyti í eigu íslenska rík­is­ins, hagn­að­ist um 19 millj­arða króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2022. Rekstr­ar­tekjur fyr­ir­tæk­is­ins voru 45,5 millj­arðar króna og hækka um 29,5 pró­sent frá sama tíma­bili árið áður. 

Nettó skuldir Lands­virkj­unar lækk­uðu um 19,8 millj­arða króna frá ára­mótum og til loka júní­mán­aðar og og hand­bært fé frá rekstri nam 31,5 millj­örðum króna, sem er hækkun upp á 43,6 pró­sent frá árinu áður. 

Aldrei hærra verð til stórnot­enda

Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands kemur fram að end­ur­samn­ingar við stórnot­endur hafi verið lyk­il­breyta í bættri afkomu. 

Auglýsing
Þar er haft eftir Herði Arn­ar­syni, for­stjóra Lands­virkj­un­ar, að eft­ir­spurn eftir raf­orku hafi verið með allra mesta móti á tíma­bil­inu, en orku­af­hend­ing til stórnot­enda jókst um fimm pró­sent og afhend­ing for­gangsorku í heild­sölu um 23 pró­sent. „Um leið var með­al­verð til stórnot­enda án flutn­ings hærra en nokkru sinni áður á fyrri árs­helm­ingi, eða 42,1 dalur á mega­vatt­stund. Þetta má m.a. rekja til end­ur­samn­inga und­an­far­inna ára, sem tryggt hafa að flestir við­skipta­vinir Lands­virkj­unar borga verð sem er sam­bæri­legt við það sem gengur og ger­ist í þeim löndum sem við berum okkur helst saman við.“

Næstum jafn mik­ill hagn­aður og allt síð­asta ár

Til sam­an­burðar má nefna að hagn­aður Lands­virkj­unar á öllu árinu 2021 var 19,3 millj­arðar króna. Af þeim hagn­aði greiddi fyr­ir­tækið 15 millj­arða króna í arð til rík­is­sjóðs. 

Lands­virkjun vinnur nálægt ¾ af allri raf­orku Íslands. Álverin sem hér starfa eru langstærstu við­­skipta­vinir Lands­­virkj­un­­ar, en orku­­samn­ingar þeirra taka mið af heims­­mark­aðs­verði á áli. Alls fer um 80 pró­sent af þeirri orku sem er fram­leidd á Íslandi til stórnot­enda.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent