Laun hækka en kaupmáttur minnkar

13223523394_c752e6b142_z1.jpg
Auglýsing

Launa­vísi­tala hækk­aði um 0,3 pró­sent milli mán­aða, frá febr­úar til mars, sam­kvæmt mæl­ingum Hag­stofu Íslands. Vísi­talan stóð í 502,1 stigi í mars síð­ast­liðnum og hefur aldrei verið hærri. Und­an­farið ár hefur launa­vísi­talan hækkað um 5,6 pró­sent.

Kaup­máttur launa lækk­aði hins vegar milli mán­aða um 0,8 pró­sent. ­Kaup­máttur launa­fólks á Íslandi er nú að jafn­aði fjórum pró­sentum meiri í dag en hann var fyrir ári síð­an. Kaup­mátt­ur­inn jókst hratt síð­ustu mán­uði en nú dregur úr. Vísi­tala kaup­mátt­ar ­fór hæst í 121,9 stig í jan­úar síð­ast­liðnum en fór niður í 120,8 í mars.

Kaup­máttur launa sýnir hversu mikið af vöru og þjón­ustu hægt er að kaupa fyrir laun­in. Óbreyttur kaup­máttur frá fyrra ári þýðir að hægt er að kaupa sam­bæri­lega vöru­körfu og þá. Þegar litið er til kaup­máttar er þannig tekið til­lit til verð­bólg­unn­ar, þ.e. almennra verð­lags­breyt­inga, ólíkt því þegar ein­göngu er litið til þró­unar launa. Launa­maður ætti í dag að geta keypt fjórum pró­sentum meira af vörum og þjón­ustu fyrir laun sín en fyr­ir­ tólf mán­uðum síð­an.

Auglýsing

Ekki skrýtið að sumir skynji launa­þróun öðru­vísi

Í við­tali við Kjarn­ann í lok febr­úar sagði Gylfi Magn­ús­son, pró­fessor í hag­fræði og dós­ent við Háskóla Íslands, að það væri ekki skrýtið að ein­hverjir skynj­uðu launa­þróun í land­inu öðru­vísi en vísi­tala Hag­stof­unnar yfir kaup­mátt launa gefur til kynna.

„Það er út af fyrir sig ekk­ert skrýtið þótt ein­hverj­ir, og jafn­vel margir, skynji launa­þróun öðru­vísi en vísi­tölu kaup­máttar launa. Hluti skýr­ing­ar­innar liggur í því að launa­taxtar og ráð­stöf­un­ar­tekjur eru ekki það sama. Það munar raunar tals­verðu vegna þess að fjár­magnstekjur voru mun hærri í bólunni, en dreifð­ust raunar mjög mis­jafnt. Jafn­framt dróst yfir­vinna tals­vert saman í krís­unn­i,“ sagði Gylfi þá í svari við skrif­legri fyr­ir­purn Kjarn­ans og Stofn­unar um fjár­mála­læsi.

Gylfi segir það sama gilda um laun og fjár­magnstekj­ur, þau séu mis­jöfn milli hópa og þótt með­al­-­launa­taxtar hækki örar en verð­lag þá eigi það ekki við um alla hópa. Sama gildi um útgjalda­hlið­ina. „Þeir sem eru á leigu­mark­aði, og eru ef til vill að reyna að skrapa saman fyrir fyrsta hús­næði, eiga mun erf­ið­ara upp­dráttar en þeir sem búa í eigin hús­næði, þótt skuld­setn­ingin skipti auð­vitað máli fyrir þann hóp. Vísi­tala neyslu­verðs [sem mælir verð­bólgu] sýnir ekki endi­lega mjög vel útgjalda­þróun hjá öll­um, hún er líka með­al­tal eins og launa­vísi­talan,“ segir Gylfi en vísi­tala kaup­máttar launa ræðst af launa­þróun (þ.e. launa­vísi­töl­unni) ann­ars vegar og verð­bólgu­þróun hins veg­ar. „Frá­vik frá með­al­tali skipta ekki minna máli en með­al­tölin sjálf,“ sagð­i Gylfi.

Neyslan var fjár­mögnuð með lánum



Vísi­tala kaup­máttar launa var í met­hæðum frá jan­úar 2007 til mars 2008, þegar hún stóð í kringum 120 stig. Eftir mikla lækkun sam­hliða efna­hag­skrís­unni, þá tók vísi­talan að hækka á ný um mitt ár 2010 og fór aftur í 120 stig í nóv­em­ber síð­ast­liðn­um.



„Rétt er að hafa í huga að í bólunni jókst mjög skuld­setn­ing heim­ila, það er þau voru að fjár­magna neyslu að ein­hverju marki með lánum [en ekki laun­um]. Nú eru heim­ilin þvert á móti að með­al­tali að greiða niður lán, sem þýðir vita­skuld að svig­rúm til neyslu er minna en ella, og fólk skynjar það vænt­an­lega í ein­hverjum mæli sem lægri tekj­ur, þótt þetta sé auk­inn sparn­aður frekar en lægri tekj­ur,“ sagð­i Gylfi þá og bætir við að lokum að allt þetta breyti því ekki að staða heim­ila fari almennt batn­andi og hafi gert frá árinu 2010. „En á meðan það eru vænt­ingar um meiri eða örari bata þá verða ein­hverj­ir, jafn­vel margir, óánægð­ir,“ sagði hann.



 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None