Laun hafa hækkað um sjö prósent og kaupmáttur launa um 5,5 prósent

14079727391-30106ea5ce-z.jpg
Auglýsing

Laun á Íslandi hækk­uðu um 2,3 pró­sent milli maí og júní, sam­kvæmt launa­vísi­tölu Hag­stofu Íslands­.­Vísi­talan hefur ekki hækkað jafn mikið milli mán­aða síðan í febr­úar 2013. Á síð­ast­liðnum tólf mán­uðum hefur launa­vísi­talan hækkað um 7,1 pró­sent en vísi­talan byggir á gögnum úr launa­rann­sókn Hag­stofu Íslands.

Á sama tíma og launa­vísi­talan hækk­aði um 2,3 pró­sent þá hækk­aði kaup­máttur launa um 2,0 pró­sent frá fyrri mán­uði. Síð­ustu tólf mán­uði hefur vísi­tala kaup­máttar launa hækkað um 5,5 pró­sent.­Vísi­tala kaup­máttar launa er reiknuð út frá vísi­tölu launa og neyslu­verðs­vísi­töl­unni, sem mælir verð­bólgu í land­inu. Almennt eykst kaup­máttur launa þegar laun hækka umfram verð­lag en lækka þegar verð­bólga er meiri en launa­hækk­an­ir.

Hér að neðan má sjá hvernig vísi­tala launa og vísi­tala kaup­máttar hefur þró­ast frá því í júní 2014. Vísi­töl­urnar eru stilltar í gildið 100 í upp­hafi tíma­bils­ins og sýna því hlut­falls­lega hækkun frá júní 2014.



Auglýsing


Fram kemur í frétt Hag­stof­unnar um málið í dag að í vísi­töl­unum gætir áhrifa nýgerðra kjara­samn­inga á almennum vinnu­mark­aði sem und­ir­rit­aðir voru í maí síð­ast­liðn­um. Þar var kveðið á um sér­staka hækkun kaup­taxta, breyt­inga á launa­töflum auk sam­komu­lags um launa­þró­un­ar­trygg­ingu að lág­marki 3,2 pró­sent frá 2015. Þá gætir einnig áhrif vegna kjara­samn­inga ríkis og Kenn­ara­sam­bands Íslands ann­ars vegar og Lækna­fé­lags Íslands hins vegar sem und­ir­rit­aðir voru á öðrum árs­fjórð­ungi 2014 og í árs­byrjun 2015.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None