Orkuveita Reykjavíkur skilaði 3,3 milljarða króna hagnaði á fyrsta ársfjórðungi

15810081330_83d70f1555_h.jpg
Auglýsing

Athuga­semd rit­stjórn­ar: Upp­gjör OR fyrir fyrsta árs­fjórð­ung var fyrst birt í maí síð­ast­liðn­um. Það var end­ur­birt í dag vegna við­bótar á enskri útgáfu  skýrslu um fjár- og áhættu­stýr­ing­u. 

Hagn­aður af rekstri Orku­veitu Reykja­víkur var 3,3 millj­arðar króna á fyrsta árs­fjórð­ungi 2015. Tekjur félags­ins á tíma­bil­inu námu um 11 millj­örðum króna og rekstr­ar­hagn­aður fyrir afskriftir (EBIT­DA) nam rúm­lega 7,2 millj­örðum króna. Eig­in­fjár­hlut­fall félags­ins hefur styrkst frá ára­mótum og er nú 34,6 pró­sent.

Auglýsing


Orku­veita Reykja­víkur er að 93,5 pró­sent hluta í eigu Reykja­vík­ur­borg­ar, Akra­nes­kaup­staður á 5,5 pró­sent og Borg­ar­byggð um 0,9 pró­sent. For­stjóri OR er Bjarni Bjarna­son.



Upp­gjör félags­ins fyrir fyrsta árs­fjórð­ung var birt í dag, í kjöl­far sam­þykktar reikn­ings­ins í stjórn OR. Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar segir að mik­ill árangur hafi náðst í fjár- og áhættu­stýr­ingu í rekstri. Sam­hliða árs­hluta­reikn­ingi er gefin út skýrsla um mark­mið OR síð­ustu ár, hvað hefur áunn­ist og að hverju er unn­ið.



Í árs­hluta­reikn­ingnum er ekki að finna sam­an­burð við sama árs­fjórð­ung í fyrra né önnur rekstr­ar­tíma­bil, eins og venjan er. Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar er ástæðan sögð upp­skipt­ing OR í upp­hafi árs 2014. Vegna þessa sé sam­an­burður við fyrra ár ekki gerð­ur.



Með auk­inni festu í rekstr­ar­um­hverfi OR, aðhaldi í rekstr­inum sjálfum og bættri áhættu­stýr­ingu hafa tekjur og gjöld fyr­ir­tæk­is­ins orðið fyr­ir­sjá­an­legri og afkoman traust­ari. Sú áætlun sem eig­endur OR og stjórn fyr­ir­tæk­is­ins hleyptu af stokk­unum 2011, Plan­ið, hefur gengið eftir og gott bet­ur. Það hefur skilað sér í hærra eig­in­fjár­hlut­falli, sem var 34,6% í lok upp­gjörs­tíma­bils­ins, 31. mars 2015.



Rétt er að benda á að afkoma OR er gjarna best á fyrsta fjórð­ungi árs. Það á trú­lega einnig við í ár þar sem fram­kvæmda­kostn­aður er síður kom­inn fram vegna erf­iðs tíð­ar­fars í vetur og vor,“ segir í til­kynn­ingu.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None