Leggur til að sameina héraðsdómstóla landsins í eina stofnun

Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra er með áform um að sameina þá átta héraðsdómstóla sem eru í landinu í eina stofnun. Forsenda sameiningarinnar er að sameinaður dómstóll hafi starfsstöðvar á landsbyggðinni.

Jón Gunnarsson er dómsmálaráðherra.
Jón Gunnarsson er dómsmálaráðherra.
Auglýsing

Dóms­mála­ráðu­neytið hefur kynnt áform um laga­setn­ingu þess efnis að sam­eina alla átta hér­aðs­dóm­stóla lands­ins í eina stofnun í sam­ráðs­gátt stjórn­valda. 

Til stendur að vinna frum­varp um málið í ráðu­neyt­inu og mark­mið hinnar fyr­ir­hug­uðu laga­setn­ingar er að auka skil­virkni og hag­kvæmni í rekstri hér­aðs­dóms­stigs­ins. Umsagn­ar­frestur um áformin hefst í dag og stendur til 9. sept­em­ber.

Í umfjöllun um áformin á vef sam­ráðs­gátt­ar­innar segir að Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra hafi hinn 23. mars síð­ast­lið­inn skipað starfs­hóp um sam­ein­ingu hér­aðs­dóm­stóla. Það hafi meðal ann­ars verið gert á grund­velli ábend­inga Rík­is­end­ur­skoð­unar sem settar voru fram í skýrslu sem send var til ráðu­neyt­is­ins 29. apríl 2020. Þar kom fram að sam­ein­ing hér­aðs­dóm­stól­anna sé skil­virkasta og árang­urs­rík­asta leiðin að auk­inni sam­ræm­ingu innan dóms­kerf­is­ins.

Auglýsing
Starfshópurinn sem Jón skip­aði í vor hefur enn ekki lokið störfum en ráð­gert er að störfum hans ljúki haustið 2022. Hann er sam­an­settur af for­manni stjórnar dóm­stóla­sýsl­unn­ar, full­trúa lög­manna­fé­lags­ins og öðrum aðstoð­ar­manni dóms­mála­ráð­herra. Lög­fræð­ingar frá dóm­stóla­sýsl­unni og dóms­mála­ráðu­neyt­inu starfa með hópn­um. Starfs­hópnum til stuðn­ings skip­aði Jón enn fremur sam­ráðs­hóp sem skip­aður er sak­sókn­ara hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara, þremur hér­aðs­dóm­ur­um, aðstoð­ar­manni hér­aðs­dóm­ara og dóm­rit­ara í hér­aðs­dómi.

Starfs­stöðvar á lands­byggð­inni for­senda

Dóms­mála­ráðu­neytið segir að for­senda sam­ein­ing­ar­innar af þess hálfu sé að sam­ein­aður dóm­stóll hafi starfs­stöðvar á lands­byggð­inni, en ekki kemur fram í kynntum áformum hversu margar þær eiga að vera. „Horft er til þess að efla og styrkja þessar starfs­stöðvar með nýjum verk­efnum og byggja þar á verk­efni um svo­nefnda rétt­ar­vörslu­gátt og því að koma á fót staf­rænni með­ferð dóms­mála. Með breyttu fyr­ir­komu­lagi hér­aðs­dóm­stól­anna má ætla að ná megi fram ein­fald­ari og skil­virk­ari stjórn­sýslu fyrir dóm­stól­ana og mark­vissu eft­ir­liti með henni. Þá má ætla að fjár­fram­lög og mannauður dóm­stól­anna muni nýt­ast betur og aukið hag­ræði nást við með­ferð dóms­mála borg­ur­unum til hags­bóta.“

Þá á breyt­ingin að fela í sér að hægt verði í rík­ari mæli að sinna málum óháð starfs­vett­vangi dóm­ara, styrkja stjórnun hér­aðs­dóms­stigs­ins og fag­legan grund­völl fyrir starf­semi dóm­stigs­ins á lands­byggð­inni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent