Lestur Fréttablaðsins og DV heldur áfram að dragast saman

fjölmiðlaflóra-e1376585407146.png
Auglýsing

Lestur Frétta­blaðs­ins minnk­aði um 0,65 pró­sentu­stig í síð­asta mán­uði. Alls lesa nú 51,4 pró­sent lands­manna á aldr­inum 12-80 ára blað­ið, sem er dreift frítt í 90 þús­und ein­tökum sex daga vik­unn­ar. Í apríl 2010 lásu 64 pró­sent lands­manna blað­ið. Því hefur blaðið tapað um 20 pró­sent les­enda sinna á síð­ustu tæpu fimm árum. Þetta kemur fram í nýjum mæl­ingum Gallup á dag­blaða­lestri á Íslandi.

Vert er að taka fram að upp­lag Frétta­blaðs­ins hefur dreg­ist saman á tíma­bil­inu.

Fallið er enn meira þegar horft er á ald­urs­hóp­inn 18-49 ára á höf­uð­borg­ar­svæð­inu ein­vörð­ungu. Í apríl 2010 lásu 77,5 pró­ent þeirra blað­ið. Í síð­asta mán­uði var það hlut­fall komið í 46,8 pró­sent.  Það þýðir að 40 færri lesa Frétta­blaðið í hópnum í dag en gerðu það fyrir tæpum fimm árum.

Auglýsing

 

Lestur DV ekki mælst minni

Miklar svipt­ingar hafa verið í kringum DV und­an­farna mán­uði með eig­enda­skipt­um, upp­sögn­um, brott­rekstrum og nýjum ráðn­ing­um. Þegar best gekk hjá DV voru 14,15 pró­sent lands­manna á aldr­inum 12 til 80 ára að lesa blað­ið. Það var í maí 2011. Tæpum þremur árum síðar var hann 12,3 pró­sent og í sept­em­ber 2014, skömmu eftir að Reyni Trausta­syn­i,­fyrrum rit­stjóra, og sam­starfs­mönnum hans var ýtt út af fjöl­miðl­inum var lest­ur­inn ell­efu pró­sent. Lest­ur­inn hefur dreg­ist skarpt saman síðan þá og mælist nú 8,6 pró­sent. Alls dróst lest­ur­inn saman í síð­asta mán­uði um tæp tíu pró­sent. Lestur DV hefur aldrei mælst lægri í mæl­ingum Gallup frá því að DV kom aftur inn í mæl­ing­arnar eftir eig­enda­skipti árið 2010. Það virð­ist fyrst og síð­ast vera ungt fólk sem er að hætta að lesa DV. Í ald­urs­hópnum 18 til 49 ára mæld­ist lestur DV mestur 12,1 pró­sent í maí 2013. Hann mælist nú 5,3 pró­sent. Hann hefur því dreg­ist saman um tæp 60 pró­sent á tæpum tveimur árum hjá hópn­um.



Les­endum Morg­un­blaðs­ins fækkar hægt og rólega



Morg­un­blað­ið, stærsta áskrift­ar­blað lands­ins, var lesið af um 43 pró­sent lands­manna árið 2009 en er nú með 28,3 pró­sent lest­ur. Lestur blaðs­ins fór í fyrsta sinn í ára­tugi undir 30 pró­sent snemma árs í fyrra. Les­endur Morg­un­blaðs­ins virð­ast líka vera í eldri kant­inum því að í ald­urs­hópnum 18 til 49 ára lesa ein­ungis um 21,7 pró­sent lands­manna Morg­un­blaðið og þar eykst lest­ur­inn lít­il­lega á milli mán­aða. Vef­síða útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins, mbl.is, er hins vegar sú mest lesna á Íslandi.

Lestur Við­skipta­blaðs­ins, sem er selt í áskrift, mælist 9,85 pró­sent og hefur hald­ist nokkuð stöð­ugur um langt skeið. Um 37,7 pró­sent lands­manna segj­ast lesa frí­blaðið Frétta­tím­ann, sem er dreift frítt einu sinni í viku.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None