Lífeyrissjóður verslunarmanna hækkar breytilega vexti á íbúðalánum

10191467436_223e85f3f0_b.jpg
Auglýsing

Breyti­legir vexti á verð­tryggðum sjóð­fé­lags­lánum Líf­eyr­is­sjóðs versl­un­ar­manna hækka úr 3,20 pró­sent í 3,35 pró­sent frá og með morg­un­deg­in­um. Þegar hefur verið til­kynnt um breyt­ing­una á heima­síðu sjóðs­ins. Líf­eyr­is­sjóð­ur­inn til­kynnti um það síð­ast­lið­inn þriðju­dag að hann byði upp á mun lægri vexti á hús­næð­is­lánum en hann hefði áður gert. Auk þess var láns­hlut­fall hækkað í 75 pró­sent af verði hús­næð­is, sem er hærra hlut­fall en aðrir líf­eyr­is­sjóðir gera. Vextir sjóðs­ins eru auk þess mun lægri en þeir vextir sem Arion banki, Íslands­banki og Lands­bank­inn bjóða við­skipta­vinum sínum upp á.

Breyt­ing­arnar eru í takt við það sem til­greint er á heima­síðu sjóðs­ins. Þar seg­ir: "Breyti­legir vextir taka breyt­ingum 15. hvers mán­aðar og getur greiðslu­byrði þess vegna sveifl­ast. Breyti­legir vextir eru 0,75 pró­sent hærri en með­al­á­vöxtun í síð­asta mán­uði á flokki íbúða­bréfa (HFF150434) skráður í kaup­höll Nas­daq OMX.“

Enn mun lægri en bank­arnir



Óverð­tryggðir vext­ir, bundir í þrjú ár, verða áfram 6,97 pró­sent hjá líf­eyr­is­sjóðnum á meðan að þeir eru 7,15 til 7,4 pró­sent hjá stóru bönk­unum þrem­ur. Þar munar 2,6 til 6,2 pró­sent. Fastir verð­tryggðir vextir hjá sjóðnum eru 3,6 pró­sent á meðan að þeir eru 3,85 til 4,3 pró­sent hjá bönk­un­um. Þar munar 6,9 til 19,4 pró­sent.

En mest af öllu mun­aði á breyti­legum verð­tryggðum vöxt­um. Þar bauð Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna upp á 3,2 pró­sent vexti á meðan að vextir hjá Arion banka og Lands­bank­anum eru 3,65 til 3,85 pró­sent. Þar mun­aði 14 til 20,3 pró­sent á vöxt­un­um. Íslands­banki býður ekki upp á breyti­lega verð­tryggða vexti.

Auglýsing

Nú, níu dögum eftir að Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna til­kynnti um lána­breyt­ing­arnar sín­ar, munu breyti­legu verð­tryggðu vext­irnir hækka upp í 3,35 pró­sent. Þeir verða samt mun lægri en þeir breyti­legu verð­tryggðu vextir sem við­skipta­bank­arnir bjóða upp á en sömu vextir og ýmsir líf­eyr­is­sjóðir bjóða upp á, t.d. Gildi. Þar er veð­setn­ing­ar­hlut­fallið hins vegar 65 pró­sent.

Kjarn­inn fjall­aði ítar­lega um ný lána­kjör Líf­eyr­is­sjóðs versl­un­ar­manna í frétta­skýr­ingu í lok síð­ustu viku.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None