Næst stærsti lífeyrissjóðurinn býður nú upp á breytileg óverðtryggð íbúðalán

Tveir af þremur stærstu lífeyrissjóðum landsins bjóða nú upp á óverðtryggð breytileg íbúðalán sem eru á sambærilegum eða betri kjörum en þau sem bankarnir bjóða. Það er mikil kúvending en lántakendur hafa flykkst frá sjóðunum til banka undanfarið.

Lífeyrissjóður verslunarmanna
Auglýsing

Líf­eyr­is­sjóður verzl­un­ar­manna, næst stærsti líf­eyr­is­sjóður lands­ins, ákvað í síð­ustu viku að stofna nýjan lána­flokk sjóðs­fé­laga­lána og lánar nú óverð­tryggð lán til íbúð­ar­kaupa með breyti­legum vöxt­um. Um er að ræða þá teg­und lána sem notið hefur mestra vin­sælda hjá íslenskum hús­næð­is­kaup­endum síð­ast­liðin ár. 

Sam­kvæmt frétt á heima­síðu sjóðs­ins hefur verið boðið upp á lánin frá því í byrjun viku og þau bera 3,85 pró­sent vexti. Líf­eyr­is­sjóður verzl­un­ar­manna lánar fyrir 70 pró­sent af kaup­verði hús­næðis og því eru lánin með sömu kjör og næst ódýr­ustu óverð­tryggðu íbúða­lán íslenskra banka á breyti­legum vöxt­um, en Lands­bank­inn rukkar 3,85 pró­sent vexti á sín lán. Eini bank­inn sem býður upp á skap­legri vexti á slíku láni er Íslands­banki, sem lánar fyrir 70 pró­sent af kaup­verði á 3,8 pró­sent vöxt­um. Arion banki býður svo breyti­lega óverð­tryggða vexti á 3,89 pró­sent kjör­um.

Gildi, þriðji stærsti líf­eyr­is­sjóður lands­ins, býður bestu óverð­tryggðu kjörin sem stend­ur, 3,45 pró­sent vexti, og Brú líf­eyr­is­sjóður býður upp á 3,8 pró­sent vext­i. Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (LS­R), stærsti líf­eyr­is­sjóður lands­ins, er því eini af stærstu sjóð­unum sem býður ekki upp á óverð­tryggða breyti­lega vexti á sjóðs­fé­lags­lánum sem stend­ur. Saman eiga þessir þrír sjóð­ir: LSR, Líf­eyr­is­sjóður verzl­un­ar­manna og Gildi rúm­lega helm­ing af allri hreinni eign íslenska líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins.

Auglýsing
Sú þróun sem var um langt skeið, að íslensku bank­arnir buðu upp á hag­stæð­ustu óverð­tryggðu vext­ina, hefur því snú­ist við. Nú eru líf­eyr­is­sjóð­irnir aftur búnir að taka for­ystu þar. Sam­hliða hefur hægst veru­lega á þeirri þróun að lands­menn færi hús­næð­is­lánin sín frá líf­eyr­is­sjóðum yfir til bank­anna. 

Bank­arnir hafa sankað að sér við­skiptum

Um mitt þetta ár voru bank­arnir komnir með 67 pró­sent af öllum útistand­andi lánum til íbúð­ar­kaupa hér­lend­is. Mark­aðs­hlut­deild þeirra hafði stór­auk­ist á skömmum tíma, sér­stak­lega eftir að stýri­vextir voru lækk­aðir niður í 0,75 pró­sent og lang­hag­stæð­ast var fyrir lán­tak­endur að taka óverð­tryggð lán hjá þeim. Til sam­an­burðar var hlut­deild bank­anna af íbúða­lánum á Íslandi 55 pró­sent í lok apríl í fyrra. 

Á sama tíma hafa ný útlán líf­eyr­is­sjóða dreg­ist saman um 63 millj­arða króna, að frá­dregnum upp- og umfram­greiðsl­u­m. 

Hlut­­­fall óverð­­­tryggðra lána af heild­­ar­­í­­­búða­lánum til heim­il­anna var 27,5 pró­­­sent í jan­úar í fyrra. Í ágúst síð­­­ast­liðnum var það hlut­­­fall hins vegar komið upp í 50,2 pró­­­sent. Í nýlegri mán­að­­ar­­skýrslu Hús­næð­is- og mann­­virkja­­stofn­unar (HMS) um íbúða­­mark­að­inn er bent á að eftir því sem hlut­­­deild óverð­­­tryggðra íbúða­lána eykst sé við­­­búið að miðlun pen­inga­­­stefnu Seðla­­­bank­ans verði virk­­­ari. „Breyt­ingar á stýri­vöxtum munu hafa meiri áhrif á hag­­­kerfið í heild þegar stærra hlut­­­fall af heild­­ar­­í­­­búða­lánum til heim­il­anna eru óverð­­­tryggð þar sem óverð­­­tryggðir vextir eru næm­­­ari fyrir stýri­­­vaxta­breyt­ing­­­um. Þessi þróun getur leitt til þess að Seðla­­­bank­inn þurfi ekki að hækka vexti eins mikið til að slá á eft­ir­­­spurn og ef hlut­­­fall óverð­­­tryggðra lána væri lægra.“

Sóknin í fast­­­vaxta­lánin eftir að vextir tóku að hækka er líka nokkuð skýr í töl­unum sem HMS birtir í skýrsl­unni sinni. Þar kemur fram að í ágúst hafi 61 pró­­­sent af nýjum óverð­­­tryggðum útlánum inn­­­láns­­­stofn­ana til heim­il­anna verið fast­­­vaxta­lán á meðan 39 pró­­­sent voru á breyt­i­­­legum vöxt­­­um. „Aukn­ing á hlut­­­falli fast­­­vaxta­lána bendir til þess að heim­ilin búist við tölu­verðum vaxta­hækk­­­unum þar sem bilið á milli fastra vaxta og breyt­i­­­legra er breitt.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent