LinkedIn greiðir notendum skaðabætur fyrir að hafa sent of marga tölvupósta

h_50056436.jpg
Auglýsing

Tengsla­vef­ur­inn Lin­kedIn hefur sam­þykkt að greiða not­endum sam­tals 13 millj­ónir Banda­ríkja­doll­ara, jafn­virði rúm­lega 1,6 millj­arða króna, í bætur vegna of margra til­kynn­inga sem sendar voru í tölvu­pósti til not­enda. Með greiðsl­unni vill Lin­kedIn útkljá hóp­mál­sókn sem höfðuð var gegn fyr­ir­tæk­inu árið 2013. Fyr­ir­tækið greindi not­endum frá sam­komu­lag­inu í tölvu­pósti síð­ast­lið­inn föstu­dag. Í póst­inum var not­endum bent á hvernig þeir geta óskað eftir skaða­bóta­greiðslu, telji þeir sig eiga rétt á henni.

Not­endum Lin­kedIn er mörgum kunn­ugt um þann mikla fjölda tölvu­pósta sem þessi sam­skipta­mið­ill atvinnu­lífs­ins send­ir, oft­ast áminn­ingar um að tengj­ast öðrum not­end­um. Skaða­bóta­málið má rekja til skil­mála svo­kall­aðrar „Add conn­ect­ion“ þjón­ustu, þar sem not­endum býðst að finna tengda aðila í gegnum net­fangið sitt. Ef not­andi óskar eftir teng­ingu þá er sá ein­stak­lingur lát­inn vita með tölvu­pósti. Ef sú mann­eskja bregst ekki við er henni sendur annar tölvu­póstur til áminn­ing­ar. Og síðan aft­ur. Sam­kvæmt skil­málum var Lin­kedIn ekki heim­ilt að senda tvo áminn­ing­ar­pósta og hefur því sam­þykkt að greiða þeim not­endum sem þess óska skaða­bæt­ur, sam­kvæmt umfjöllun Quartz um málið. Þar er not­endum sem fengu tölvu­póst­inn síð­ast­lið­inn föstu­dag bent á hvernig þeir geta óskað eftir skaða­bót­um.

Auglýsing



„Að gefnum þeim ótrú­lega fjölda tölvu­pósta sem Lin­kedIn sendir not­end­um, þá vita starfs­menn lík­leg­ast hvenær tíma dags best er að hafa sam­band. Þess vegna er fyndið að tölvu­póst­ur­inn um sam­komu­lagið var sendur not­endum seint á föstu­dag, á þeim tíma þegar fyr­ir­tæki reyna jafnan að fela slæmar fréttir í þeirri von að almenn­ingur taki ekki eftir því,“ segir í lok umfjöll­unar Quartz, sem jafn­framt segir að þótt not­endur opni sjaldn­ast tölvu­pósta frá Lin­ked­In, þá ættu þeir að gera það núna.



Þeir sem skráðu sig fyrir tengsla-­þjón­ustu Lin­kedIn í Banda­ríkj­unum á tíma­bil­inu frá 17. sept­em­ber 2011 til 31. októ­ber 2014 geta skráð sig fyrir mót­töku skaða­bóta­greiðslu. Fyr­ir­tækið hefur sam­þykkt að greiða alls 13 millj­ónir doll­ara auk allt að 3,25 millj­ónum doll­ara í lög­fræði­kostn­að. Ef nægi­lega margir skrá sig þá mun Lin­kedIn bæta við 750 þús­und doll­urum í skaða­bóta­pott­inn.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None