Lögmæti grísku atkvæðagreiðslunnar fyrir dómstólum - Fylgið hnífjafnt

h_52031633-1.jpg
Auglýsing

Æðsti dóm­stóll Grikk­lands mun skera úr um hvort boðuð þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla næsta sunnu­dag, um samn­inga við kröfu­hafa gríska rík­is­ins, stand­ist stjórn­ar­skrá lands­ins. Í atkvæða­greiðsl­unni verða Grikkir spurðir hvort þeir vilji þyggja fjár­hags­að­stoð frá Evr­ópu­sam­band­inu og alþjóða­stofn­unum gegn frekara aðhaldi og nið­ur­skurði í rík­is­rekstri.

Nei-lið­ar, með Tsipras for­sæt­is­ráð­herra í broddi fylk­ing­ar, telja að skýr afstaða þar sem samn­ingum er hafnað muni bæta samn­ings­stöðu Grikk­lands. Sam­kvæmt nýj­ustu skoð­ana­könn­unum er fylgið hnífjafnt. Í morgun birt­ist skoð­ana­könnun sem sýndi 44,8 pró­sent fylgi við sam­þykki samn­inga en 43,4 pró­sent fylgi við að þeim verði hafnað í þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni.  Sam­kvæmt sömu könnun vilja 74 pró­sent Grikkja halda áfram evru­sam­starf­inu og 15 pró­sent vilja taka upp eigin mynt. Könnun Bloomberg frétta­stof­unnar bendir til hins sama hvað þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­una varð­ar, 42,5 pró­sent sögð­ust ætla kjósa „já“ en 43 pró­sent myndu kjósa „nei“. Um 14,5 pró­sent aðspurðra sögð­ust óákveð­in.

Leið­togar stærstu evru­ríkj­anna og Evr­ópu­sam­bands­ins hafa sagt með skýrum hætti að í raun kjósi Grikkir um áfram­hald­andi veru í evru­sam­starf­inu. Í gær gaf Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn (AGS) út yfir­lýs­ingu og sagði Grikk­land þurfa 50 millj­arða evra til við­bótar næstu þrjú árin og viða­mikla nið­ur­fell­ingu skulda til þess að ná jafn­vægi í hag­kerf­ið. Um 1,6 millj­arða evra end­ur­greiðsla af fyrra láni frá AGS féll á gjald­daga í byrjun júlí­mán­að­ar. Slíkt gæti alla jafna haft gríð­ar­legar afleið­ingar og hrint af stað keðju­verkun þar sem önnur lán til Grikkja falla á gjald­daga. Málið snýr þó aðeins öðru­vísi vegna þess að um er að ræða lán frá AGS. Í dag til­kynnt­i ­Evr­ópski fjár­mála­stöð­ug­leika­sjóð­ur­inn, EFSF, síð­an að ekki verði gerð krafa um end­ur­greiðslu nærri 150 millj­arða evra láns vegna ákvörð­unar grískra stjórn­valda um að greiða ekki AGS, að svo stöddu.

Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None