Lögregla kærð 89 sinnum fyrir misbeitingu valds á sjö ára tímabili

logreglan-net000002.jpg
Auglýsing

Lög­reglu­menn voru í 89 atvikum kærðir til emb­ættis Rík­is­sak­sókn­ara fyrir meinta mis­beit­ingu valds í starfi á árunum 2008 til 2014. Þetta kemur fram í skrif­legu svari Ólafar Nor­dal inn­an­rík­is­ráð­herra, við fyr­ir­spurn Birgittu Jóns­dóttur þing­manns Pírata, sem lagt var fram fyrir Alþingi í dag.

Árið 2008 voru kær­urnar 15 tals­ins, þar af voru þrettán vegna meints harð­ræðis og ein vegna nið­ur­lægj­andi hátt­semi við lík­ams­leit. Rann­sókn var hætt í fimm mál­um, átta mál voru felld niður og í einu máli var fallið frá sak­sókn. Í einu mál­inu var ákært, þar sem sak­fellt var fyrir lík­ams­árás en sýknað af ákæru um brot í starfi.

Kærur á hendur lög­reglu fyrir mis­beit­ingu valds í starfi voru 12 að tölu árið 2009. Ell­efu mál voru vegna meints harð­ræðis lög­reglu, tvö málin lutu að illri með­ferð þar sem við­kom­andi var haldið of lengi í fanga­klefa. Í öðru mál­inu var lög­regla sökuð um að hafa látið undir höfuð leggj­ast að hafa sam­band við ætt­ingja eða lög­menn. Í öllum mál­unum var ýmist rann­sókn hætt eða þau felld nið­ur, nema einu þar sem sak­fellt var fyrir brot í starfi fyrir Hæsta­rétti Íslands.

Auglýsing

Rík­is­sak­sókn­ara bár­ust 14 kærur árið 2010 þar sem lög­reglu­menn voru sak­aðir um mis­beit­ingu valds í starfi. Tólf kær­anna lutu að meintu harð­ræði lög­reglu, ein kæran var vegna meintrar hót­unar og önnur vegna nið­ur­lægj­andi með­ferðar við hand­töku. Rann­sókn var hætt eða mál felld niður í öllum til­vik­um, nema einu þar sem kæra var dregin til baka.

Árið 2011 voru kær­urnar ell­efu tals­ins. Sjö kærur vegna meints harð­ræð­is, tvær vegna nið­ur­lægj­andi með­ferð­ar, ein vegna illrar með­ferðar og í einu til­viki var lög­reglu­maður kærður fyrir að leyna gögnum vegna gæslu­varð­halds. Í öllum mál­unum var ýmist rann­sókn hætt eða þau felld nið­ur.

Kærur á hendur lög­reglu­mönnum fyrir mis­beit­ingu valds í starfi voru tólf tals­ins árið 2012. Ell­efu mál­anna voru vegna meints harð­ræðis og í einu til­felli var and­lát manns í vörslu lög­reglu kært til Rík­is­sak­sókn­ara. Í tveimur mál­anna var rann­sókn hætt, sjö mál voru felld nið­ur, kæru í einu máli var vísað frá og í einu til­viki var fallið frá sak­sókn. Eitt mál­ið, er varð­aði harð­ræði við hand­töku, leiddi til ákæru þar sem lög­reglu­maður var sak­felldur fyrir Hér­aðs­dómi fyrir brot í starfi.

Árið 2013 barst Rík­is­sak­sókn­ara 20 kærur þar sem lög­reglu­menn voru sak­aðir um mis­beit­ingu valds í starfi. Það ár bár­ust flestar kær­urnar þess efnis á áður­nefndu tíma­bili sem var til skoð­un­ar. Fjórtán mál­anna voru vegna meints harð­ræð­is, þrjár kær­urnar lutu að nið­ur­læg­ingu við hand­töku, í einu mál­inu var lög­reglu gefið að sök lík­ams­árás vegna afskipta af hand­töku, og í einu til­viki var lög­regla kærð vegna lík­ams­meið­ingar af gáleysi á vett­vangi og öðru var lög­reglu gefið að sök að hafa ekki virt ósk um rétt til lög­manns. Í fimmtán málum var rann­sókn hætt eða þau felld nið­ur. Í fjórum málum var kærum vísað frá, en í einu til­viki var lög­reglu­mað­ur­ ­dæmdur í skil­orðs­bundið fang­elsi vegna harð­ræðis við hand­töku.

Á síð­ast ári voru fimm mál, þar sem lög­reglu­menn voru sak­aðir um mis­beit­ingu valds, kærð til Rík­is­sak­sókn­ara. Í þremur mál­anna var kærum vísað frá, í einu mál­inu var rann­sókn hætt og í því fimmta þótti ekki til­efni til að fram­kvæma rann­sókn.

Af þeim 89 mál­um, þar sem lög­reglu­menn voru sak­aðir um mis­beit­ingu valds, sem bár­ust Rík­is­sak­sókn­ara á árunum 2008 til 2014, leiddu fjögur þeirra til­ sak­fell­ingar yfir lög­reglu­mönnum fyrir dóm­stól­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None