Lyfjaframleiðsla Actavis flyst úr landi: 300 starfsmenn vinna þar í dag

19074241728_4d3b384514_b.jpg
Auglýsing

Stjórn­endur móð­ur­fé­lags Act­a­vis hafa ákveðið að flytja fram­leiðslu lyfja­verk­smiðju Act­a­vis á Íslandi úr landi og til ann­arra fram­leiðslu­ein­inga sam­stæð­unn­ar. Þetta er gert í hag­ræð­inga­skyni og er líður í tryggja sam­keppn­is­hæfni fyr­ir­tæk­is­ins, segir í til­kynn­ingu frá Act­a­vis til fjöl­miðla í dag. Um 300 starfs­menn vinna við lyfja­fram­leiðslu hér á landi, af sam­tals um 700 starfs­mönnum hér­lend­is. Fram­leiðsla lyfja­verk­smiðj­unnar verður flutt í skref­um, fyrst frá árs­lokum 2016 en gert er ráð fyrir að hún verði lögð niður árið 2017. Tekið er fram að önnur starf­semi á Íslandi helst óbreytt.

„Önnur starf­semi á Íslandi verður óbreytt en hér­lendis er fjöl­breytt alþjóð­leg starf­semi, m.a. á sviði lyfja­þró­unar fyrir alþjóða­mark­aði, skrán­ing­ar­svið sem ber ábyrgð á skrán­ingum og við­haldi mark­aðs­leyfa út um allan heim, alþjóð­legt gæða­svið og fjár­mála­svið, auk sölu- og mark­aðs­sviðs sem sinnir Íslands­mark­aði, sem og ýmis stoð­svið. Þá eru hér á landi höf­uð­stöðvar Med­is, dótt­ur­fé­lags fyr­ir­tæk­is­ins, sem selur lyf og lyfja­hug­vit Act­a­vis til ann­arra lyfja­fyr­ir­tækja. Um það bil 300 starfs­menn eru hjá fram­leiðslu­ein­ing­unni á Íslandi en um það bil 400 starfs­menn í öðrum ein­ingum fyr­ir­tæk­is­ins hér á land­i,“ segir í til­kynn­ingu.

Robert Steward, for­stjóri sam­heita­lyfja­sviðs og alþjóða­fram­leiðslu sam­stæð­unnar segir í til­kynn­ing­unni að hann vilji sér­stak­lega taka fram að ákvörð­unin end­ur­spegli ekki frammi­stöðu starfs­manna, enda hafi ein­ingin á Íslandi skilað fram­úr­skar­andi árangri und­an­farin ári og verið til fyr­ir­myndar þegar kemur að gæða­stjórn­un, örygg­is­málum og þjón­ustu við við­skipta­vini. „Við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að koma til móts við starfs­fólk okkar til að auð­velda aðlögun að breyttum aðstæð­um. Við munum veita stuðn­ing, bjóða upp á þjálfun og umb­una starfs­fólk­inu sér­stak­lega fyrir að vinna með okkur í gegnum þessar breyt­ing­ar. Að lokum vil ég leggja áherslu á að við erum ekki að fara frá Íslandi – við munum halda áfram að byggja upp þær öfl­ugu ein­ingar sem hér starfa svo sem á sviði þró­un­ar, skrán­inga, gæða­mála, fjár­mála og sölu- og mark­aðs­mála. Þá verða höf­uð­stöðvar Medis áfram hér á land­i,“  segir hann.

Auglýsing

Miklar breyt­ingar und­an­farin ár



Miklar breyt­ingar hafa orðið á eign­ar­haldi og rekstri Act­a­vis und­an­farin ár, með yfir­tökum og sam­r­unum innan lyfja­geirans. „Eftir nýlegan sam­runa við banda­ríska frum­lyfja­fyr­ir­tækið All­ergan hefur fyr­ir­tækið breyst frá því að vera öfl­ugt sam­heita­lyfja­fyr­ir­tæki í leið­andi alhliða lyfja­fyr­ir­tæki sem sinnir jöfnum höndum þró­un, fram­leiðslu og mark­aðs­setn­ingu frum­lyfja, sam­heita­lyfja, lausa­sölu­lyfja og líf­tækni­lyfja. Í dag er fyr­ir­tækið orðið eitt af 10 stærstu lyfja­fyr­ir­tækjum í heimi, með starf­semi í 100 löndum og yfir 30.000 starfs­menn,“ segir í til­kynn­ing­unni.

„Að und­an­förnu hefur verið unnið að yfir­grips­mik­illi grein­ingu á fram­leiðslu­starf­semi sam­stæð­unnar víða um heim til þess að hámarka nýt­ingu á fram­leiðslu­getu sam­stæð­unn­ar. Nið­ur­stöður þeirrar úttektar eru þær að aðrar verk­smiðjur sam­stæð­unnar hafa svig­rúm til að taka við þeim vörum sem fram­leiddar eru á Íslandi. Með við­bót­ar­nýt­ingu tækja og mann­afla, hag­stæðu rekstr­ar­um­hverfi og auknu fram­leiðslu­magni eykst hag­ræð­ing til muna.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None