Mannréttindadómstóll Evrópu (MDE) hefur vísað frá máli Ingólfs Helgasonar á hendur íslenska ríkinu þar sem úrræði fyrir íslenskum dómstólum hafi ekki verið tæmd. Þetta kemur fram á heimasíðu Landslaga. Ingólfur Helgason er fyrrverandi forstjóri Kaupþings banka hf. á Íslandi og sætir ákæru fyrir meinta markaðsmisnotkun og umboðssvik í starfi sínu, ásamt átta öðrum starfsmönnum bankans.
Ingólfur kærði íslenska ríkið til dómstólsins vegna meintra brota á rétti hans til að velja sér verjanda eftir að Hæstiréttur staðfesti úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að afturkalla skipun Jóhannesar Bjarna Björnssonar hæstaréttarlögmanns, sem verjanda Ingólfs. Var afturköllunin studd þeim rökum að ekki væri útilokað að verjandinn yrði kvaddur til sem vitni í málinu þar sem ákæruvaldið hafði lagt fram í málinu endurrit af hleruðu símtali milli verjandans og annars sakbornings í málinu.
Í bréfi um niðurstöðu MDE dags. 13. nóvember segir að dómstóllinn hafi komist að þeirri niðurstöðu að þar sem málaferli þau sem kæran er sprottin af séu enn í gangi fyrir íslenskum dómstólum teljist innlend úrræði ekki tæmd líkt og áskilið sé í Mannréttindasáttmála Evrópu. Ákvörðunin er endanleg hvað varðar þá kæru sem send var MDE en sérstaklega er tekið fram í bréfi dómstólsins að unnt sé að senda nýja kæru þegar málsmeðferð í máli ákæruvaldsins gegn Ingólfi Helgasyni lýkur hér á landi.