Maraþonsvindl tekið fyrir í áfrýjunardómstóli ÍSÍ í næstu viku

39kmB-m09.1.jpg
Auglýsing

Áfrýj­un­ar­dóm­stóll ÍSÍ kveður upp dóm sinn á þriðju­dag­inn um ­meint svindl Arn­ars Pét­urs­sonar í Reykja­vík­ur­mara­þon­inu. Arnar kom fyrstur Íslend­inga í enda­mark hlaups­ins, sem fram fór laug­ar­dag­inn 31. ágúst síð­ast­lið­inn, rúmum níu mín­útum á undan næsta manni og var krýndur Íslands­meist­ari karla í mara­þoni. Næsti Íslend­ingur á eftir Arn­ari var hlaupar­inn Pétur Sturla Bjarna­son, sem sigr­aði Reykja­vík­ur­mara­þonið árið áður.

Pétur Sturla kærði úrslit hlaups­ins til yfir­dóm­nefndar Reykja­vík­ur­mara­þons, og sak­aði þar Arnar um svindl í hlaup­inu með því að hafa notið lið­sinnis tveggja hjól­reiða­manna í hlaup­inu.

Kæruna byggði Pétur Sturla á 10. grein reglna Reykja­vík­ur­mara­þons, en þar seg­ir: "Hlaupa­brautin er ein­göngu ætluð kepp­end­um. Ekki er heim­ilt að fylgja hlaup­urum gang­andi, hlaup­andi, á hjóli eða öðrum far­ar­tækjum (und­an­þága fyrir fylgd­ar­menn fatl­aðra). Það er á ábyrgð þátt­tak­enda að vísa frá þeim sem vilja fylgja." Þá segir í 18. grein regln­anna: "Brot á ofan­greindum reglum ógilda þátt­töku­rétt í hlaup­in­u."

Auglýsing

Yfir­dóm­nefnd Reykja­vík­ur­mara­þons vís­aði kæru máls­ins frá. Í úrskurði dóm­nefnd­ar­innar er við­ur­kennt að tveir hjól­reiða­menn hafi fylgt Arn­ari þrjá fjórðu hluta hlaupa­leið­ar­inn­ar, sem hafi verið brot á reglum mara­þons­ins, en dóm­nefnd­inni þótti ekki sannað að hjól­reiða­menn­irnir hafi aðstoðað Arnar í hlaup­inu. Þá hefði sigur hans verið það afger­andi að fylgd­ar­menn hans hefðu ekki haft áhrif á úrslit hlaups­ins.

Pétur Sturla kærði nið­ur­stöðu yfir­dóm­nefnd­ar­innar til dóm­stóls ÍSÍ, sem stað­festi úrskurð yfir­dóm­nefnd­ar. Kær­andi áfrýj­aði þá þeirri  nið­ur­stöðu til áfrýj­un­ar­dóm­stóls ÍSÍ, sem mun taka málið fyrir á þriðju­dag­inn. Þar sem Pétur Sturla er búsettur erlendis mun full­trúi hans mæta í hans stað við fyr­ir­töku máls­ins. Hæsta­rétt­ar­lög­mað­ur­inn Jón Gunnar Zoëga er for­seti áfrýj­un­ar­dóm­stóls ÍSÍ.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None