María hættir – Vill ekki taka ábyrgð á vanfjármagnaðri stofnun

María Heimisdóttir hefur sagt upp störfum sem forstjóri Sjúkratrygginga Íslands. Hún segist ekki vilja taka ábyrgð á vanfjármagnaðri stofnun.

María Heimisdóttir.
María Heimisdóttir.
Auglýsing

„Það hefur ekki [...] tek­ist að styrkja rekstr­ar­grund­völl [Sjúkra­trygg­inga] til að ná ásætt­an­legum árangri – að við getum rækt lög­boðnar skyldur okkar með sóma og boðið sam­keppn­is­hæf laun. Við þessar aðstæður treysti ég mér því miður ekki til að bera ábyrgð á okkar mik­il­vægu verk­efn­um.“

Þetta skrif­aði María Heim­is­dótt­ir, for­stjóri Sjúkra­trygg­inga Íslands, í bréfi til sam­starfs­manna sinna er hún til­kynnti þeim um þá ákvörðun sína að segja upp störf­um. Stundin greinir frá þessu og í þeirri frétt kemur fram að Willum Þór Þórs­son heil­brigð­is­ráð­herra hafi fengið upp­sagn­ar­bréf Maríu um miðja síð­ustu viku. Upp­sögnin var að því er fram kemur í Stund­inni einnig til umræðu á stjórn­ar­fundi SÍ sl. fimmtu­dag.

Auglýsing

Svan­dís Svav­ars­dótt­ir, þáver­andi heil­brigð­is­ráð­herra, skip­aði Maríu í stöðu for­stjóra Sjúkra­trygg­inga haustið 2018 eða fyrir rúm­lega fjórum árum. Hún tók við emb­ætt­inu af Stein­grími Ara Ara­syni.

María var áður fram­kvæmda­stjóri fjár­mála­sviðs Land­spít­al­ans. Hún er læknir að mennt en hefur auk þess lokið MBA-­námi með áherslu á stjórnun í heil­brigð­is­þjón­ustu og dokt­ors­námi í lýð­heilsu­fræð­um.

Heil­brigð­is­ráð­herra segir synd að sjá Maríu hverfa frá störfum

Willum Þór Þórs­son heil­brigð­is­ráð­herra var inntur eftir við­brögðum við upp­sögn Maríu í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi síð­deg­is. Hann seg­ist virða ákvörðun Maríu en að það væri synd að sjá hana hverfa frá störf­um, hún hafi staðið sig vel, ekki síst á krefj­andi tímum í gegnum heims­far­ald­ur.

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra. Mynd: Bára Huld Beck

„Það er komið nóg af stefnu- og ráða­leysi rík­is­stjórn­ar­innar í heil­brigð­is­mál­u­m,“ sagði Oddný G. Harð­ar­dótt­ir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, sem spurði Willum hvað þurfi til svo að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og Vinstri græn snúi frá svelti­stefnu Sjálf­stæð­is­flokks­ins í heil­brigð­is­mál­um.

Willum svar­aði með því að segj­ast binda vonir við að 100 milljón króna auka­fram­lag til Sjúkra­trygg­inga Íslands muni skipta máli. „Við þurfum síðan vinna áfram að því að bæta kerfin og styrkja stofn­un­ina í flók­inni samn­inga­gerð.“

Frétt Stund­ar­inn­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent