„Þetta er bara eins og að fara með rangt barn heim af róló“

Guðmundur Björgvin Helgason ríkisendurskoðandi skaut föstum skotum að forsvarsmönnum Bankasýslunnar á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar og sakaði Lárus Blöndal um að hafa talað gegn betri vitund er hann sjálfur kom fyrir nefndina.

Guðmundur Björgvin Helgason ríkisendurskoðandi á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
Guðmundur Björgvin Helgason ríkisendurskoðandi á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
Auglýsing

„Þetta er bara eins og að fara með rangt barn heim af róló og halda svo áfram að kynna það fyrir fjöl­skyldu og vinum sem sitt eig­ið,“ sagði Guð­mundur Björg­vin Helga­son rík­is­end­ur­skoð­andi á fundi stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefndar um við­brögð Banka­sýslu rík­is­ins við umfjöllun Rík­is­end­ur­skoð­unar um villur í Excel-skjali, sem Banka­sýslan sjálf sendi inn til Rík­is­end­ur­skoð­unar í vor undir heit­inu „Staða til­­­boðs­­bókar þegar leið­bein­andi verð og magn voru ákvörðuð 22 mars 2022“.

Guð­mundur Björg­vin kom fyrir stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd í morgun og gagn­rýndi þar orð Lárusar Blön­dal stjórn­ar­for­manns Banka­sýsl­unnar um áður­nefnt Excel-skjal á fundi nefnd­ar­innar í lok síð­ustu viku, og full­yrti að Lárus hefði á fund­inum með nefnd­inni „talað gegn betri vit­und“.

Í máli Lárusar á fund­inum á föstu­dag kom meðal ann­ars fram að á fundi með rík­is­end­ur­skoð­anda hefðu full­trúar Banka­sýsl­unnar gengið eftir og fengið stað­fest­ingu á því að Rík­is­end­ur­skoðun gerði engan ágrein­ing um að Banka­sýslan hefði haft rétt og villu­laust skjal í hönd­unum er leið­bein­andi loka­verð var ákvarðað í útboð­inu í mars.

Auglýsing

„Þetta er bara alvar­legt mál, ég veit ekki hvað vakir fyrir Banka­sýsl­unni þegar hún gerir þetta, en ég segi bara hér sem trún­að­ar­maður Alþingis og sem rík­is­end­ur­skoð­andi að mál­flutn­ingur Banka­sýsl­unnar um þetta atriði er bara alls ekki við hæfi og ein­göngu til þess fall­inn að skapa upp­lýs­inga­óreiðu og afvega­leiða umræðu þings og almenn­ings um það hvað þetta mál sner­ist um,“ sagði rík­is­end­ur­skoð­andi á fundi nefnd­ar­innar í morg­un.

Í máli hans kom fram að hann liti svo á hann legði starfs­heiður sinn að veði í hvert sinn sem hann skil­aði skýrslu til Alþing­is, og ítrek­aði að eng­inn mis­skiln­ingur væri hjá Rík­is­end­ur­skoðun hvað þetta atriði varð­aði, full­yrð­ingar Banka­sýsl­unnar um það væru að hans mati „eftirá­skýr­ingar og yfir­klór­“.

„Það sem við báðum Banka­sýsl­una um var staða til­boða­bókar þegar ákvörðun um leið­bein­andi loka­verð var tek­in. Þetta erum við að biðja um sirka 20. maí, ef ég man rétt. Við fáum frá Banka­sýsl­unni skjal og hún í svörum sínum til okk­ar, svarar út frá þessu skjal­i,“ sagði Guð­mundur Björg­vin.

Sam­ráðið „með ólík­ind­um, algjör­lega for­dæma­laust“

Rík­is­end­ur­skoð­andi sagði einnig að sam­ráð við Banka­sýsl­una í umsagn­ar­ferl­inu hefði að hans mati verið verið „með ólík­ind­um, algjör­lega for­dæma­laust“.

„Þeir voru boð­aðir á fund, Banka­sýslan, sem er ekki alvana­legt þegar skýrslur eru í umsagn­ar­ferli, en þar lögðu þeir fyrir Ríki­end­ur­skoðun meðal ann­ars hvernig við ættum að afmarka okkar vinnu og hvernig við hefðum átt að vinna þessa skýrslu,“ sagði Guð­mundur Björg­vin.

Rík­is­end­ur­skoð­andi bætti við að strax í upp­hafi úttekt­ar­vinnu Rík­is­end­ur­skoð­unar hefði komið fram í máli fjár­mála­ráðu­neytis að menn­ing Banka­sýsl­unnar „ein­kennd­ist meira af fjár­mála­mark­aði heldur en opin­berrar stjórn­sýslu“ og að hann teldi „að í raun­inni allt sem hefur gerst og átt sér stað í mál­flutn­ingi Banka­sýsl­unnar síðan þessi skýrsla var gefin út sem og í umsagn­ar­ferli stað­festi þetta“.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent