Markmiðið „að taka yfir borgina“

Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík þarf að vera „opinn í báða enda“ þegar kemur að meirihluta samstarfi. Markmiðið er að „taka yfir borgina,“ segir Hildur Björnsdóttir sem sækist eftir forystusæti þar sem fyrir er „vinur hennar“, Eyþór Arnalds.

Eyþór Arnalds og Hildur Björnsdóttir sækjast bæði eftir því að leiða Sjálfstæðisflokkinn í næstu borgarstjórnarkosningum.
Eyþór Arnalds og Hildur Björnsdóttir sækjast bæði eftir því að leiða Sjálfstæðisflokkinn í næstu borgarstjórnarkosningum.
Auglýsing

„Ég býð mig fram til for­ystu og við sækj­umst bæði eftir sama sæt­i,“ sagði Hildur Björns­dótt­ir, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, þegar Egill Helga­son, umsjón­ar­maður Silf­urs­ins, sagði hana vera að bjóða sig fram gegn Eyþóri Arn­alds núver­andi odd­vita flokks­ins í borg­inni. „Það er styrk­leika­merki hjá stórum flokki að fleiri en einn sæk­ist eftir að leiða.“

Ekki hefur enn verið ákveðið hvenær próf­kjör flokks­ins í Reykja­vík fer fram en miðað er við að það verði í lok febr­ú­ar. Kosn­ing­arnar fara svo fram um miðjan maí.

„Ætlarðu að berj­ast fyrir sæti þín­u?“ spurði Egill svo Eyþór sem var einnig gestur Silf­urs­ins. „Verðu maður ekki að gera það?“ svar­aði Eyþór. Hann seg­ist hafa staðið fyrir ákveðnum sjón­ar­miðum í borg­ar­mál­unum og seg­ist skynja núna að það sé kom­inn fram „miklu breið­ari kór“ sem sé sam­mála um það að margt þurfi að laga í borg­inni. „Ég tel að ég hafi náð þar hljóm­grunni meðal margra aðila í þjóð­fé­lag­in­u.“ Hann sagði að nú væri „komið að því að breyta í vor“. Fólk væri komið með „óþol“ og að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn væri „eina hreyfi­aflið sem getur breytt“.

Auglýsing

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hlaut 31 pró­sent atkvæða í síð­ustu borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum en end­aði í minni­hluta. Ef svipuð nið­ur­staða yrði upp á ten­ingnum þyrfti flokk­ur­inn að leita samt­arfs, vilji hann kom­ast til valda. Eyþór seg­ist ekki úti­loka sam­starf við neinn en nefnt hefur verið að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, kæmi hann sterkt inn í kosn­ingum í vor líkt og hann gerði í þing­kosn­ing­unum nýver­ið, gæti orðið fyrsta val. Eyþór sagði að sjá yrði til hver yrði í fram­boði til hvers flokks til að sjá „hverjir geta dansað sam­an“.

Egill spurði Hildi hver væri mein­ing­ar­mun­ur­inn á henni og Eyþóri. „Telur þú þig geta fiskað betur en hann?“

Hildur sagð­ist telja að það þyrfti ekki að vera „ein­hver stór­kost­legum mein­ing­ar­mun­ur“ þótt fólk væri að sækj­ast eftir sama sæti. „Það sem fólk þarf þá að gera upp við sig er hvor aðil­inn er með meiri aðlað­andi fram­tíð­ar­sýn, hvor sé lík­legri til að vinna kosn­ingar og hvor aðil­inn sé lík­legri til að leiða okkur inn í meiri­hluta­sam­starf.“

Egill spurði þá hvort hún teldi sig lík­legri til alls þessa en Eyþór.

„Ég býð mig fram vegna þess að ég tel mig geta gert allt þetta,“ svar­aði Hild­ur. „Ég er ekki komin hingað til að hall­mæla vini mínum Eyþóri, við erum sam­herjar í Sjálf­stæð­is­flokkn­um. En við sækj­umst eftir sama for­ystu­sæti og um það snýst mál­ið. Heila málið er auð­vitað að vinna kosn­ingar og kom­ast í meiri­hluta.“

Hún sagði að eftir síð­ustu kosn­ingar hafi aðrir flokkar lokað á sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk í borg­ar­stjórn, jafn­vel þótt flokk­ur­inn hafi unnið kosn­inga­sig­ur. „Það er staða sem við getum ekki fundið okkur aftur í. Við þurfum að vera opin í alla enda. Við þurfum að geta myndað meiri­hluta með fólki sem á með okkur mál­efna­legan grund­völl og að við getum tekið yfir borg­ina. Það er auð­vitað mark­mið okkar sjálf­stæð­is­manna. Okkur finnst kom­inn tími á það fyrir löngu síðan að við höfum ein­hver áhrif í þess­ari borg.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent