Meðalsölutími íbúða á höfuðborgarsvæðinu aldrei verið styttri

Mikil ásókn er í íbúðir í fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu en í mars seldust yfir 60 prósent íbúða yfir ásettu verði miðað við þriggja mán­aða með­al­tal.

Reykjavík
Auglýsing

Með­al­sölu­tími íbúða í mars var 35,8 dagar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og hefur aldrei verið styttri. Í nágranna­sveit­ar­fé­lögum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins var einnig um met að ræða þar sem með­al­sölu­tím­inn var 44,1 dag­ur. Ann­ars staðar á lands­byggð­inni hefur með­al­sölu­tím­inn lengst nokkuð und­an­farna tvo mán­uði og er nú 71,4 dagar en sveiflur þar eru miklar og því of snemmt að segja til um hvort um við­snún­ing sé að ræða.

Þetta kemur fram nýj­ustu mán­að­ar­skýrslu HMS.

Þar segir enn­fremur að með­al­kaup­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafi verið 71,4 millj­ónir króna í mars sam­an­borið við 57,9 millj­ónir króna í mars 2021. Þar af seld­ust íbúðir í fjöl­býli að jafn­aði á 66 millj­ónir króna en sér­býlin á 109,6 millj­ónir króna. Í nágranna­sveit­ar­fé­lögum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins var með­al­kaup­verðið 48,3 millj­ónir og ann­ars staðar á land­inu var það 42,6 millj­ónir króna.

Auglýsing

Yfir 60 pró­sent íbúða seld­ust yfir ásettu verði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu

Sam­kvæmt HMS seld­ist í mars í fyrsta sinn yfir helm­ingur íbúða yfir ásettu verði, eða 51,2 pró­sent, en í febr­úar hafði hlut­fallið í fyrsta sinn farið yfir 40 pró­sent. Yfir­leitt hafi þetta hlut­fall verið á bil­inu 7 til 15 pró­sent.

Mynd: HMS

Fram kemur í skýrsl­unni að sér­stak­lega virð­ist vera mikil ásókn í íbúðir í fjöl­býli á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en í mars seld­ust 61,2 pró­sent íbúða yfir ásettu verði miðað við þriggja mán­aða með­al­tal en aðeins 24 pró­sent undir ásettu verði. Ef aðeins er horft til mars­mán­aðar en ekki á þriggja mán­aða með­al­tal er hlut­fallið nokkuð hærra en hins vegar er um bráða­byrgða­tölur að ræða. Auk­in­heldur seld­ist meira fjórð­ungur 1 til 2 her­bergja íbúða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á meira en 5 pró­sent yfir ásettu verði. Í októ­ber á síð­asta ári fór þetta sama hlut­fall í fyrsta sinn yfir 10 pró­sent.

Um 52 pró­sent sér­býla á höf­uð­borg­ar­svæð­inu seld­ust yfir ásettu verði sem er líka met og á lands­byggð­inni seld­ust um 45 pró­sent íbúða í fjöl­býli og 26 pró­sent sér­býla yfir ásettu verði.

Svipað ástand virð­ist ríkja á Norð­vest­ur­landi, sam­kvæmt skýrslu­höf­und­um, en þar seld­ust 49 pró­sent allra íbúða yfir ásettu verði og í póst­núm­eri 600 Akur­eyri seld­ust 56 pró­sent íbúða yfir ásettu verði sem er sama hlut­fall og á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Mest virð­ist hafa verið bit­ist um íbúðir í úthverfum Reykja­víkur en yfir 70 pró­sent íbúða í póst­núm­eri 111 í Breið­holti seld­ust yfir ásettu verði og 108 og 109 fylgja þar fast á eft­ir.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent