Fjártæknifyrirtækið Meniga hefur tryggt sér eins og hálfs milljarðs króna fjármögnun. Samkvæmt tilkynningu frá fyrirtækinu var fjármögnunin leidd af hollenska fjárfestingasjóðnum Velocity Capital Fintech Futures og íslenska fjárfestingasjóðnum Frumtak Ventures.
Aðrir þátttakendur voru sænski fjárfestingasjóðurinn Industrifonden, breski sjóðurinn UK Future Fund og bankarnir UniCredit, Swedbank, BPCE og Íslandsbanki. Þessir bankar og fjárfestingasjóðir eiga það sameiginlegt að hafa verið lengi í hópi eigenda og viðskiptavina Meniga.
Samkvæmt tilkynningu frá Meniga hefur heimsfaraldurinn valdið því að spurn eftir stafrænni bankaþjónustu hefur stóraukist um heim allan. Féð sem nú fæst frá fjárfestum verður nýtt til þess að efla sölu- og þjónustuteymi fyrirtækisins og áhersla verður lögð á vöruþróun og nýsköpun.
„Sérstaklega verður horft til þróunar og markaðssetningar á vörum þar sem fjártækni og umhverfismál koma saman. Á meðal nýrra vara Meniga er umhverfisvaran Carbon Insight en hún gerir bönkum mögulegt að valdefla viðskiptavini sína í umhverfismálum. Með Carbon Insight geta notendur netbanka séð áætlað kolefnisspor á einkaneyslu sinni og gripið til aðgerða til lágmarka það. Vörunni er ætlað að hjálpa fólki um allan heim að berjast við loftlagsbreytingar,“ segir í tilkynningu fyrirtækisins.
Haft er eftir Georg Lúðvíkssyni forstjóra og meðstofnanda Meniga að mikil ánægja sé með áframhaldandi stuðning fjárfesta. „Nýtt fjármagn mun gera okkur kleift að markaðssetja vörur okkar til væntanlegra viðskiptavina um allan heim. Carbon Insight er gott dæmi um vöru sem mikill áhugi er á en að minnsta kosti fjórir bankar í jafnmörgum löndum munu taka hana í gagnið á þessu ári og við sjáum vaxandi eftirspurn eftir henni hjá bönkum um allan heim,“ segir Georg.
Í fréttatilkynningu Meniga er einnig haft eftir Svönu Gunnarsdóttur, framkvæmdastjóra Frumtak Ventures, að sjóðurinn hafi frá upphafi verið sannfærður um að Meniga hefði mjög spennandi vaxtarmöguleika á sviði fjártækni.
„Meniga hefur fest sig í sessi sem öflugur brautryðjandi í fjártæknilausnum fyrir helstu banka um allan heim, en sá markaður er nú í örum vexti sem aldrei fyrr,“ er haft eftir Svönu.