Skýrsla um rekstur Ríkisútvarpsins hefur ekki verið afhent menntamálaráðuneytinu, eins og Óli Björn Kárason, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, hélt fram í grein í Morgunblaðinu í morgun. Þetta segir Sigríður Hallgrímsdóttir, aðstoðarmaður Illuga Gunnarssonar menntamálaráðherra, í svari við fyrirspurn Kjarnans um málið.
Illugi skipaði í vor þriggja manna starfshóp til að skoða og greina rekstur Ríkisútvarpsins frá því að RÚV var gert að opinberu hlutafélagi þann 1. apríl 2007. „Markmiðið er að sú skoðun varpi ljósi á ástæður þess alvarlega rekstrarvanda sem Ríkisútvarpið ohf. glímir nú við,“ sagði í tilkynningu um skipan hópsins. Eyþór Arnalds er formaður hópsins og Guðrún Ögmundsdóttir, starfmaður í fjármálaráðuneytinu, og Svanbjörn Thoroddsen ráðgjafi, sitja líka í honum. Hann átti upphaflega að skila niðurstöðum sínum fyrir 26. júní, en það varð ekki.
Í grein í morgun sagði Óli Björn að skýrsla starfshópsins væri tilbúin og hefði verið afhent ráðherra fyrir mörgum vikum síðan, en af einhverjum ástæðum ekki verið birt. „Það er sérkennilegt, svo ekki sé dýpra í árinni tekið, að almenningur fái ekki aðgang að skýrslu um fjárhagslega stöðu fyrirtækisins sem a.m.k. á tyllidögum og í auglýsingum er sagt „okkar allra“ sem með góðu eða illu greiða nefskatt í formi útvarpsgjalds til að standa undir rekstrinum,“ sagði Óli Björn.
Sigríður Hallgrímsdóttir segir hins vegar í svari við fyrirspurn Kjarnans um málið að skýrslan hafi ekki verið afhent, en samkvæmt formanni nefndarinnar sé líklegt að af því verði innan fárra daga, að öllum líkindum í næstu viku.