Miðstjórn Alþýðusamband Íslands krefst þess að fram fari rannsókn á meðferð opinberra fjármuna í tengslum við stuðningsúrræði til fyrirtækja vegna efnahagslegra áhrifa COVID- faraldursins. Þetta kemur fram í ályktun sem miðstjórnin samþykkti á fundi sínum í dag og segir þar að það sé „eðlileg og réttmæt krafa að þessir þættir verði rannsakaðir“, enda hafi óheyrilegum fjármunum verið veitt til stuðnings fyrirtækja.
„Sum þeirra voru sannarlega í brýnni þörf, en nú er að koma á daginn að önnur voru það ekki. Þá stendur upp á stjórnvöld að skýra hvers vegna skilyrði voru sett gagnvart sumum stuðningsúræðum, en öðrum ekki og hvers vegna háar girðingar eru reistar gagnvart einstaklingum í neyð, en ekki fyrirtækjum,“ segir í ályktuninni.
Í henni er bent á að Alþýðusambandið hafi farið fram á það, þegar „ríkishirslurnar voru opnaðar til að veita fyrirtækjum ríkisstuðning af óþekktri stærð“ í upphafi kórónuveirufaraldursins fyrir tæpum tveimur árum síðan, að reist yrðu skilyrði fyrir slíkum stuðningi.
„Meðal annars lagði ASÍ áherslu á að fyrirtækjum yrði gert skylt að nýta eigin bjargir áður en til stuðnings kæmi, að fyrirtæki undirgengjust skilyrði um að greiða ekki út arð næstu tvö árin eftir fyrirgreiðslu eða nýta aðrar leiðir til að taka fé úr fyrirtækjunum og að fyrirtæki eða eigendur þeirra væru ekki skráð í skattaskjól. Að auki krafðist ASÍ þess að laun æðstu stjórnenda fyrirtækja sem fengju aðstoð væru ekki óhófleg samanborið við laun almenns starfsfólks. Sem sagt, aðstoðin yrði neyðaraðstoð en ekki til þess að fyrirtækjaeigendur gætu makað krókinn,“ segir í ályktun miðstjórnarinnar.
Miðstjórn ASÍ bendir á að einungis hafi verið reist skilyrði fyrir stuðningi á grundvelli laga um hlutabótaliðina svokölluðu, en að aðrir styrkir og stuðningur til fyrirtækja hafi að mestu eða öllu leyti verið án skilyrða. „Þetta veldur því að nú eru dæmi um fyrirtæki sem eru beinlínis að greiða út arð fyrir skattfé,“ segir í ályktun miðstjórnarinnar.
Þar segir enn fremur að ströng skilyrði séu sett við „allri aðstoð sem einstaklingar njóta þegar í harðbakkann slær“ og að það eigi jafnt við um atvinnuleysisbætur, fjárhagsaðstoð sveitarfélaganna, almannatryggingar og önnur velferðarúrræði.
„En þegar kemur að fyrirtækjum er nálgunin önnur. Þótt enn sjái ekki fyrir endann á kreppunni, berast þegar fréttir af launahækkunum æðstu stjórnenda, bónuskerfum og gríðarlegri arðsemi fjármálafyrirtækja og ýmissa annarra fyrirtækja,“ segir í ályktun miðstjórnarinnar, sem telur sem áður segir bæði eðlilegt og réttmætt að stjórnvöld láti ráðast í rannsókn á meðferð opinberra fjármuna í tengslum við stuðningsúrræði sem komið var á vegna faraldursins.