Útflutningstekjur jukust um 2,6 prósent af VLF vegna verðhækkana

Verðhækkanir á áli og öðrum málmum leiddu til mikillar aukningar í útflutningsverðmætum á síðustu mánuðum. Alls námu þær 2,6 prósentum af landsframleiðslu ársins 2020.

Mikið af verðmætasköpuninni sem átti sér stað í fyrra var vegna verðhækkunar á málmum.
Mikið af verðmætasköpuninni sem átti sér stað í fyrra var vegna verðhækkunar á málmum.
Auglýsing

Útflutn­ings­verð­mæti málma, að járni und­an­skildu, juk­ust um rúma 76 millj­arða króna í fyrra vegna verð­hækk­unar á alþjóða­mörk­uð­um. Þessar verð­hækk­anir skil­uðu því tekjum sem nema tæpum þremur pró­sentum af lands­fram­leiðslu. Þetta kemur fram í tölum Hag­stofu um vöru­við­skipti á milli landa.

Kjarn­inn hefur áður fjallað um verð­hækk­anir á áli, en þær hafa verið gjöf­ular fyrir stór­iðj­una hér­lendis á síð­ustu mán­uð­um. Í des­em­ber í fyrra nam útflutn­ings­verð­mæti málms­ins alls tæpum 34 millj­örðum króna og var það nýtt met. Ef litið er til síð­asta árs í heild sinni var verð­mæti álút­flutn­ings 37 pró­sentum hærra en það var árið 2020.

Auglýsing

Svip­aðar tölur má sjá þegar útflutn­ingur á málm­um, að járni und­an­skildu, eru skoð­aðar fyrir síð­asta ár. Sam­kvæmt þeim nam heild­ar­verð­mæti útflutn­ings­ins alls 295 millj­örðum króna í fyrra, sem er tæp­lega 78 millj­örðum króna meiri útflutn­ingur en á árinu 2020. Það jafn­gildir 36 pró­senta aukn­ingu.

Mynd: Kjarninn. Heimild: Hagstofa

Nær öll aukn­ingin er vegna hrá­vöru­verðs­hækk­ana á heims­vísu, en magn útflutn­ings­ins breytt­ist lítið sem ekk­ert. Ef með­al­verð á málmum hefði verið jafn­hátt og það var árið 2020 hefði verð­mæti útflutn­ings­ins í fyrra verið 76 millj­örðum króna minna. Áhrif verð­hækk­ana eftir mán­uðum sést á mynd hér að ofan, en sam­kvæmt henni mun­aði mestu um hækk­an­irnar í fyrra­haust.

Fjórð­ungur af vexti VLF

Árið 2020 nam lands­fram­leiðsla Íslands tæpum þrjú þús­und millj­örðum króna, en 76 millj­arðar króna eru 2,6 pró­sent af þeirri upp­hæð. Það er um fjórð­ungur af þeim vexti í lands­fram­leiðslu að nafn­virði sem Seðla­bank­inn gerir ráð fyrir að hafa orðið hér­lendis í fyrra, en sam­kvæmt nýjasta hefti Pen­inga­mála má búast við að hann hafi numið 4,9 pró­sentum árið 2021 og verð­bólgan verið 4,4 pró­sent á sama tíma.

Sam­kvæmt Pen­inga­mál­um, sem komu út fyrr í mán­uð­in­um, hafa skamm­tíma­horfur í álút­flutn­ingi hins vegar versnað á síð­ustu vik­um, þar sem talið er að skerð­ing á orku­sölu til álvera muni hafa nei­kvæð áhrif. Þó segir bank­inn að lang­tíma­horf­urnar í geir­anum séu óbreytt­ar.

Aths: 19. mars: Í fyrri útgáfu frétt­ar­innar var talað um fram­lag álverðs­ins til hag­vaxt­ar, en rétt­ara væri að tala um fram­lag þess til aukn­ingar í lands­fram­leiðslu. Frétt­inni hefur verið breytt í sam­ræmi við það.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent