Mikil hætta á ofrisi hagkerfisins - Er Ísland best í heimi?

sigmundur_bjarni.jpg
Auglýsing

Seðla­banki Íslands hefur þurft að beita öllum ráðum til að koma í veg fyrir að krónan styrk­ist meira en hún hefur gert að und­an­förnu. Á um fjórum vikum hefur hún styrkst um fimm pró­sent gagn­vart evru en um tæp­lega sjö pró­sent sé litið nokkra mán­uði aft­ur. „Við erum að leggj­ast jafn þungt ef ekki þyngra en áður, en það er bara meiri straumur,“ sagði Arnór Sig­hvats­son, aðstoð­ar­seðla­banka­stjóri, á fundi pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­banka Íslands í gær.

Nú þegar líður að fram­kvæmd áætl­unar um losun hafta, er myndin tekin að skýr­ast. Svo virð­ist sem mun meiri hætta sé á því nú, að gengi krón­unnar rísi hratt fremur en að það veik­ist. Ekki er langt síðan að umræð­an, ekki síst hjá stjórn­mála­mönn­um, var um það að krónan myndi veikj­ast mikið við losun hafta, en nú er staðan önn­ur.

Það versta er, að hag­stjórn­ar­tækj­unum hefur ekki verið beitt skyn­sam­lega að und­an­förnu, til þess að und­ir­búa hag­kerfið fyrir það sem framundan er. Margt bendir til þess að kjara­samn­ing­arn­ir, sem tóku ekki síst miðað við af samn­ingum rík­is­ins við starfs­menn, séu bein­línis hættu­legir hag­kerf­inu. Engin inni­stæða er fyrir 20 til 30 pró­sent launa­hækkun hjá flestum stétt­um, enda þekk­ist slíkt hvergi í þró­uðum ríkj­um. Ef það væri inni­stæða fyrir slíkum hækk­un­um, þvert á lín­una, þá væri allt fljót­andi í pen­ingum á Íslandi, og ríki og sveit­ar­fé­lög skuld­laus. Því miður er það ekki raun­in, og því fer fjarri. Auk þess hefur verð­bólga hald­ist lág að und­an­förnu útaf þróun sem kemur sér­ís­lenskum aðstæðum lítið við. Um 60 pró­sent verð­lækkun á olíu á tíu mán­aða tíma­bili, hefur smit­andi áhrif á verð­lag, og hefur stuðlað að lágri verð­bólgu, sem hefur verið undir 2,5 pró­sent mark­miði í 20 mán­uði. Enginn veit hvort olíu­verðið muni sveifl­ast hratt upp aftur eða ekki, þó flestar spár geri ráð fyrir að það hald­ist í lægra lagi, sögu­lega.

Auglýsing

Stjórn­mála­menn, verka­lýðs­hreyf­ingin og atvinnu­rek­endur - allir þeir sem sátu við borðið - skulda almenn­ingi skýr­ingar á þess­ari stöðu. Það er ekki nóg að segja, þegar óveð­ur­skýin fara að hrann­ast upp og spennan verður aug­ljós í hag­kerf­inu með til­heyr­andi kaup­mátt­arrýrn­un, að þetta sé allt ein­hverjum öðrum að kenna. Þau verða að svara því hvers vegna Ísland hefur efni á því að hækka laun allra um 20 til 30 pró­sent, en svo til engin önnur þjóð. Eru þau að halda því fram að Ísland sé best í heimi? Á að gera það aft­ur?

Rík­is­sjóður mun brátt fá til sín nálægt 400 millj­örðum króna vegna upp­gjörs slita­búa föllnu bank­anna, og þá mun reyna á stjórn­mála­menn­ina. Hvað ætla þeir að gera við þessa pen­inga? Í ljósi þess að þeir voru til­búnir að dreifa 80 millj­örðum ofan á fast­eigna­markað á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í hraðri upp­sveiflu, þá veit maður aldrei hvað þeir munu gera við pen­ing­ana. Mikil hætta er á ofrisi kerf­is­ins og krón­unn­ar, og verða þeir að fara var­lega. En maður veit aldrei hvað þeir gera, enda eiga þeir allt sitt undir vin­sældum kjós­enda og haga seglum eftir þeim vind­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiPæling dagsins
None