Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið Moody's hefur hækkað lánshæfiseinkunn ríkissjóðs úr Baa3 í Baa2. Í fréttatilkynningu frá Moody's kemur fram að ákvörðun um hækkun lánshæfismatsi byggist á þremur lykilþáttum, að því er segir á vef Seðlabanka Íslands.
- Vandlega undirbúnar aðgerðir hafa verið kynntar til að losa fjármagnshöft sem gera ráð fyrir að draga úr viðkvæmri erlendri stöðu þjóðarbúsins samhliða því að standa vörð um efnahagslegan og fjármálalegan stöðugleika.
- Væntingar um bætta skuldastöðu Ríkissjóðs Íslands á næstu þremur til fjórum árum vegna öflugs hagvaxtar, frekara aðhalds í ríkisfjármálum og fyrirframgreiðslu skulda ríkissjóðs.
- Bætt umgjörð þjóðhags- og eindarvarúðarreglna sem miða að því að varðveita fjármálastöðugleika til framtíðar.
Moody's hefur einnig hækkað landseinkunnina fyrir erlendar skuldir til langs tíma og skamms tíma og innstæður í Baa2/P-2 úr Baa3/P-3 og landseinkunnina fyrir skuldir og innstæður í innlendri mynt í Baa1 úr Baa2.
Moody's gerir ráð fyrir að ríkissjóður muni fá á bilinu 400 til 500 milljarða króna út úr áætluninni um losun fjármagnshafta, og að skuldastaða ríkissjóðs muni lagast verulega verða á bilinu 20 til 25 prósent af landsframleiðslu þegar fram í sækir.