MP Straumur, sameinaður banki MP banka og Straums fjárfestingabanka, mun heita Kvika frá og með ð næsta mánudegi. Í tilkynningu vegna þessa segir að nafnið vísi "í óbeislaða orku íslenskrar náttúru; jarðkvikuna sem iðar og hrærist, umbreytir og skapar spennu."
Samhliða breytingunni mun Kvika taka upp nýtt merki. Kvika skilgreinir sig sem umbreytingabanka sem sérhæfir sig í alhliða þjónustu við sparifjár- og innlánseigendur á sviði eignastýringar. Þá mun bankinn veita sérhæfða fjármálaþjónustu með áherslu á umbreytingaverkefni. "Fyrstur íslenskra banka innleiðir Kvika nýja fjárfestingastefnu, partnership banking, sem snýr að samvinnu bankans og viðskiptavinarins. Stefnan miðar að heildarhag allra viðskiptavina, eigenda og starfsmanna Kviku," segir enn fremur í tilkynningu.
Nafnabreytingin mun taka gildi í kjölfar hluthafafundar á mánudagsmorgun. Í kjölfar fundarins verður vefsíðu bankans og heimabankans breytt.
Sigurður Atli Jónsson, forstjóri Kviku, segir að með nafnabreytingunni sé bankinn að stíga síðasta formlega skrefið í sameiningu bankanna tveggja. "Að vissu leyti er þetta nýtt upphaf fyrir bankann, sem þó byggir áfram á þeim góða grunni sem lagður var í Straumi fjárfestingabanka og MP banka. Við erum afskaplega ánægð með að vera orðin Kvika og vonum að viðskiptavinir verði jafn ánægðir með nýtt nafn og breyttar áherslur sameinaðs banka.“
MP banki og Straumur sameinuðust síðastliðið sumar. Tímabundið gekk nýi bankinn undir nafninu MP Straumur. Samruninn gekk formlega í gegn 29. júní síðastliðinn.