Alex Crawford, fréttakona Sky News, ferðaðist á dögunum með hópi flóttafólks frá Tyrklandi og sjóleiðina á litlum gúmmíbát til grísku eyjarinnar Lesbos. Í gær birtist tíu mínútna löng fréttaskýring hennar um ferðina á Sky News.
Crawford ræddi meðal annars við einn smyglaranna sem koma fólkinu fyrst langa leið á landi og síðan yfir hafið til Lesbos. Fullorðið fólk borgaði 1.200 dollara, eða ríflega 150 þúsund krónur, fyrir ferðalagið. Börn fá afslátt.
Fréttaskýringu Crawford má sjá hér að neðan.
Auglýsing