Myndi kosta ríkissjóð 168 milljarða á ári að gera lágmarkslaun skattfrjáls

Fjármálaráðherra segir að ríkissjóður myndi verða af tekjum sem samsvara 85 prósent af öllum tekjuskattsstofninum ef 350 þúsund króna mánaðartekjur yrðu gerðar skattfrjálsar.

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra.
Auglýsing

Rík­is­sjóður myndi verða af 168,3 millj­örðum króna á hverju ári ef per­sónu­af­slátt­ur­inn yrði hækk­aður svo að 350 þús­und króna mán­að­ar­tekjur væru skatt­frjáls­ar. Hækkun fjár­magnstekju­skatts upp í 25% myndi hins vegar aðeins auka tekjur rík­is­sjóðs um 2,9 millj­arða króna. Þetta kemur fram í nýbirtu svari Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn frá Lilju Raf­n­eyju Magn­ús­dótt­ur, þing­konu VG.

Lilja spurði hvaða áhrif það hefði á rík­is­sjóð miðað við núgild­andi tekju­skatts­hlut­föll að hækka per­sónu­af­slátt svo að mán­að­ar­tekjur á bil­inu 250 til 350 þús­und yrðu skatt­frjáls­ar. Í svari ráð­herra kom fram að áhrif þess á rík­is­sjóð væru tvenns kon­ar, ann­ars vegar myndi hærri per­sónu­af­sláttur leiða til minni tekna af tekju­skatti, en hins vegar hefur það áhrif til hækk­unar á upp­gjöri rík­is­sjóðs við sveit­ar­fé­lög vegna nýt­ingar per­sónu­af­sláttar til greiðslu útsvars. Engin óbein áhrif á rík­is­sjóð, líkt og auknar virð­is­auka­skatt­tekjur vegna auk­innar neyslu voru þó metin í svar­inu við fyr­ir­spurn­inni.

Sam­kvæmt Bjarna þyrfti per­sónu­af­sláttur að vera 78 þús­und krónur á mán­uði til þess að mán­að­ar­tekjur að 250 þús­und krónum yrðu skatt­frjáls­ar. Slík hækkun myndi kosta rík­is­sjóð um 88 millj­arða kórna, sem sam­varar um 45% af álagn­ingu tekju­skatts á ein­stak­linga í fyrra.

Auglýsing

Til þess að mán­að­ar­tekjur að 350 þús­und krón­um, sem er nálægt lág­marks­laun­um, verði skatt­frjálsar þyrfti per­sónu­af­slátt­ur­inn hins vegar að vera 110 þús­und krónur á mán­uði. Heild­ar­tekju­tap rík­is­sjóðs af því er metið á 168,3 millj­arða, en það sam­svarar 85 pró­sentum af tekju­skatts­stofn­in­um.

Lilja spurði einnig hvaða áhrif það hefði á rík­is­sjóð að hækka fjár­magnstekjsu­skatt, sem er núna í 22 pró­sent­um, upp í 23-25 pró­sent. Sam­kvæmt Bjarna myndi slík hækkun auka tekjur rík­is­sjóðs um 1 til 2,9 millj­arða króna, eða sem svarar til um 4 til 12 pró­sent af heild­ar­skatt­inum í álagn­ingu síð­asta árs.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent