Næstum því jafnmargir starfa nú og fyrir farsótt

Fjöldi starfandi fólks hefur aukist hratt síðustu mánuðum og fyrirtæki hafa mikinn áhuga á að ráða til sín starfsfólk. Samkvæmt Seðlabankanum væri atvinnuleysið 2,5 prósentustigum hærra ef ekki væri fyrir ráðningarstyrki stjórnvalda.

Vonir eru bundnar við að störfum fari aftur að fjölga samhliða fjölgun ferðamanna.
Vonir eru bundnar við að störfum fari aftur að fjölga samhliða fjölgun ferðamanna.
Auglýsing

Starf­andi fólki fjölg­aði tölu­vert á síð­asta árs­fjórð­ungi og er fjöldi þeirra nálægt því að vera jafn­mik­ill og hann var áður en far­ald­ur­inn byrj­aði. Þetta kemur fram í nýjasta hefti Pen­inga­mála Seðla­banka Íslands, sem var gefið út í morg­un.

Sam­kvæmt heft­inu fjölg­aði störfum mest í ferða­þjón­ustu, en sam­hliða fjölg­un­inni jókst atvinnu­þátt­taka einnig og er hún nú orðin áþekk því sem hún var í byrjun síð­asta árs. Þó er hlut­fall starf­andi 2,5 pró­sentum lægra en það var þá, þar sem fólki á vinnu­mark­aði hefur fjölg­að.

Ráðn­inga­styrkir mik­il­vægir

Ráðn­ing­ar­styrkir stjórn­valda virð­ast hafa spilað stórt hlut­verk í minnkun atvinnu­leys­is, en sam­kvæmt Seðla­bank­anum var að jafn­aði um helm­ingur afskrán­inga af atvinnu­leys­is­skrá vegna þeirra. Bank­inn áætlar að atvinnu­leysi hefði verið um 2,5 pró­sentu­stigum hærra ef þeirra hefði ekki not­ið.

Auglýsing

Sam­hliða þessu hefur lang­tíma­at­vinnu­leysi einnig minnk­að, en Seðla­bank­inn segir þó að það sé enn í hærra lagi. Um 2,6 pró­sent af vinnu­mark­aðnum eru skráðir sem lang­tíma­at­vinnu­laus­ir, sem sé svipað og það varð mest í kjöl­far síð­ustu fjár­málakreppu.

Erf­ið­ara að leiða saman fyr­ir­tæki og starfs­menn

Seðla­bank­inn segir mik­inn vilja vera til staðar hjá fyr­ir­tækjum að ráða til sín starfs­fólk og bendir á nið­ur­stöður kann­ana sem sýna að stór hluti stjórn­enda telja fyr­ir­tækin sín búa við starfs­manna­skort. Í einni slíkri könnun svar­aði þriðj­ungur stjórn­enda að fyr­ir­tæki þeirra væru í vanda með að mæta óvæntri eft­ir­spurn.

Sam­kvæmt Seðla­bank­anum hefur geta vinnu­mark­að­ar­ins til að leiða saman atvinnu­leit­endur og fyr­ir­tæki minnk­að, sem lýsir sér í háu atvinnu­leysi sam­hliða miklum fjölda lausra starfa. Bank­inn bindur þó vonir sínar við að það dragi aftur úr þess­ari óskil­virkni á vinnu­mark­aðnum á næst­unni þar sem störfum fjölgar mikið í ferða­þjón­ust­unni og skráð atvinnu­leysi nálg­ast á sama stig og fyrir heims­far­ald­ur­inn.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent