Ný könnun: Átta af hverjum tíu á móti lokun neyðarbrautar Reykjavíkurflugvallar

10191439034_ca72667a9e_z.jpg
Auglýsing

Alls eru 78 pró­sent Íslend­inga and­víg því að flug­braut 06/24, oft nefnd neyð­ar­braut, á Reykja­vík­ur­flug­velli verði lok­að. Þetta kemur fram í könnun sem MMR vann fyrir sam­tökin Hjartað í Vatns­mýr­inni, sem hafa barist gegn lokun braut­ar­inn­ar. Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eru 74 pró­sent íbúa and­vígir því að braut­inni verði lokað sam­kvæmt könn­un­inni. Í Reykja­vik einni saman eru 68 pró­sent á móti lokun braut­ar­inn­ar. Hægt er að lesa nið­ur­stöður könn­un­ar­innar hér.

Í til­kynn­ingu frá Hjart­anu í Vatns­mýr­inni er haft eftir Frið­riki Páls­syni, for­manni sam­tak­anna, að nið­ur­staðan sýn­i ein­hug lands­manna og höf­uð­borg­ar­búa í flug­vall­ar­mál­inu. "Hér er spurt um nákvæm­lega það sem er að ger­ast núna á vell­in­um, til­raunir borg­ar­innar til að loka neyð­ar­braut­inni. Eng­inn þarf nú að efast um afstöðu lands­manna til neyð­ar­braut­ar­inn­ar. Nið­ur­staðan hlýtur að vekja stjórn­mála­menn til umhugs­un­ar."

Könn­unin var unnin af MMR dag­ana 16. - 21. apríl 2015 og spurt var "Ert þú fylgj­andi eða and­víg(­ur) því að flug­braut 06/24 á Reykja­vík­ur­flug­velli, oft nefnd neyð­ar­braut, verði lok­að?" Svar­fjöldi var 1.001 manns.

Auglýsing

Þarf að loka neyð­ar­braut­inni



Til stendur að reisa á bil­inu 800 til 850 íbúðir á Hlíð­ar­enda­svæð­inu í Reykja­vík.  Fram­kvæmd­irnar eru hluti af aðal­skipu­lagi Reykja­vík­ur­borgar og búið er að sam­þykkja breyt­ingar á deiliskipu­lagi þannig að þær geti haf­ist. Fram­kvæmd­irnar hafa í för með sér að minnsta flug­braut Reykja­vík­ur­flug­vall­ar, sem stundum er kölluð neyð­ar­braut, verður ónot­hæf, en hún hefur hvorki verið á deili- né aðal­skipu­lagi frá árinu 2007.

Í febr­úar sam­þykkti meiri­hluti borg­ar­stjórnar Reykja­víkur sam­komu­lag við Vals­menn ehf. um upp­bygg­ingu íbúða­lóða á þeim hluta Hlíð­ar­enda­svæð­is­ins sem liggur að umræddri flug­braut.

Fyrr í þessum mán­uð­i hófust loks fram­kvæmdir við fram­kvæmd­ar­veg sem þarf að að leggja milli íþrótta- og bygg­inga­svæð­is­ins.  Það hefur vakið mikla reiði hjá mörgum and­stæð­ingum þess að Reykja­vík­ur­flug­völlur verði fluttur úr Vatns­mýr­inni. Hjartað í Vatns­mýr­inni skor­aði til að mynda á Alþingi og inn­an­rík­is­ráð­herra að stöðva fram­kvæmd­irnar og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra sagði í ræðu sinni á flokks­þingi Fram­sókn­ar­flokks­ins í apríl að öllum mætti vera ljóst „að grípa þarf til varna fyrir Reykja­vík­ur­flug­völl og koma í veg fyrir að borg­ar­yf­ir­völd grafi stöðugt undan flug­vell­inum og beiti brögðum til að losna við hann.“

Vísað í skipu­lags­reglur Reykja­vík­ur­flug­vallar



Þann 17. apríl síð­ast­lið­inn sendi inn­an­rík­is­ráðu­neytið bréf til borg­ar­stjóra Reykja­víkur í til­efni af leyfi sem Reykja­vík­ur­borg veitti til fram­kvæmda á svæði Vals­manna við Hlíð­ar­enda. Í bréf­inu stend­ur:

„Ljóst er að fram­an­greindar fram­kvæmd­ir, sem fram­kvæmd­ar­að­ili hefur nú byrj­að, eru und­an­fari frek­ari upp­bygg­ingar og bygg­inga­fram­kvæmda á svæð­inu sem ekki getur orðið af að óbreyttum skipu­lags­reglum Reykja­vík­ur­flug­vall­ar.“

Umræddar skipu­lags­reglur voru settar þegar Krist­ján L. Möller var sam­göngu­ráð­herra, í ágúst 2009. Þær voru settar sam­kvæmt loft­ferða­lögum frá árinu 1998, en fram til árs­ins 2009 höfðu reglur af þessu tagi aldrei verið sett­ar.

Reykja­vík­ur­borg gerði athuga­semdir við tíma­setn­ingu regln­anna, og taldi að skipu­lags­reglur af þessu tagi ættu að koma í kjöl­far end­ur­skoð­unar á deiliskipu­lagi flug­vall­ar­ins, sem væri gert á grund­velli aðal­skipu­lags. Því taldi borgin að fresta hefði átt gild­is­töku regln­anna þangað til end­ur­skoðun aðal­skipu­lags og deiliskipu­lags hefði átt sér stað.

Þessu sögð­ust sam­göngu­yf­ir­völd ekki vera sam­mála, regl­urnar tækju mið af gild­andi deilu­skipu­lagi. Hins vegar sögðu þau í umsögn um athuga­semd borg­ar­inn­ar: „Sam­göngu­yf­ir­völd hafa ekki skipu­lags­vald á svæð­inu og því er ljóst að komi til breyt­inga á aðal­skipu­lagi eða deiliskipu­lagi vall­ar­ins þarf að end­ur­skoða regl­urnar en slíkt er ein­falt mál.“ Í regl­unum sé vísað til þess að þær taki mið af gild­andi aðal­skipu­lagi og deiliskipu­lagi vall­ar­ins.

Ótíma­bært að gefa út leyfi og hefja fram­kvæmdir



Í bréfi inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins segir einnig að Sam­göngu­stofa hafi til umfjöll­unar mögu­leg áhrif lokun neyð­ar­braut­ar­innar og að Rögnu­nefndin svo­kall­aða, sem kannar mögu­lega flug­vall­ar­kosti, hafi ekki lokið störf­um. „Á meðan að nið­ur­stöður nefnd­ar­innar liggja ekki fyrir og ekki hafa verið teknar ákvarð­anir á grund­velli til­lagna hennar verður flug­braut 06/24 [svokölluð neyð­ar­braut] ekki lokað eða aðrar ákvarð­anir teknar sem leiða til þess að flug­brautin verði tekin úr notk­un.

Í ljósi fram­an­greindra atrið var með öllu ótíma­bært að gefa út fram­kvæmda­leyfi og hefja fram­kvæmdir á þeim grund­velli. Ráðu­neytið skorar á Reykja­vík­ur­borg að virða gild­andi skipu­lags­reglur og þá stjórn­sýslu­með­ferð sem er í gangi fyrir Sam­göngu­stöf­u.“

Undir bréfið skrif­uðu Ólöf Nor­dal inn­an­rík­is­ráð­herra og ráðu­neyt­is­stjór­inn Ragn­hildur Hjalta­dótt­ir.

Hægt er að lesa bréfið í heild sinni hér.

Segir fram­kvæmd­irnar ekki hafa áhrif á flug­völl­inn



Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri Reykja­vík­ur, segir hins vegar að þau fram­kvæmda­leyfi sem gefin hafi verið út á Vals­reitnum svo­kall­aða, teng­ist ein­ungis veglagn­ingu og und­ir­bún­ings­fram­kvæmdum á reitum sem séu utan flug­línu.

Fram­kvæmd­irnar hafi því hvorki áhrif á Reykja­vík­ur­flug­völl til eða frá.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None