Til stendur að leggja fram frumvarp um að lögfesta nýja arðgreiðslureglu fyrir Seðlabanka Íslands innan tveggja til þriggja vikna, samkvæmt heimildum Kjarnans. Verði frumvarpið að lögum mun Seðlabankinn borga allan hagnað yfir ákveðið lágmarks eigið fé til ríkissjóðs sem arðgreiðslu. Ekki hefur fengist uppgefið hvert þetta lágmarks eigið fé verður utan þess að það verður reiknað út eftir „ákveðinni aðferðarfræði“.
Kjarninn greindi nýverið frá því að skuldabréf sem ríkið skuldar Seðlabankanum hafi verið lækkað um 26 milljarða króna,í 145 milljarða króna, án þess að greiðsla hefði borist fyrir. Sú aðgerð gerði það að verkum að vaxtagreiðslur ríkisins vegna skuldabréfsins verða 8,1 milljarður króna á næsta ári. Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2015 segir að þessi nýja arðgreiðsluregla geri „ráð fyrir því að auknar vaxtatekjur vegna skuldabréfsins skili sér aftur til ríkissjóðs í formi arðgreiðslu þar sem nýja reglan gerir ráð fyrir að allur hagnaður bankans verði greiddur til ríkissjóðs sé eigið fé bankans yfir skilgreindu viðmiði“.
Með nýju arðgreiðslureglunni gætu því vextirnir sem ríkið greiðir af skuld sinni við Seðlabankann skila sér aftur til ríkissjóðs í formi arðgreiðslu í lok hvers árs.
Mikil breyting frá því sem nú er
Um töluvert mikla breytingu er að ræða. Í dag eru lögin þannig að þriðjungur alls hagnaðar Seðlabankans rennur í ríkissjóð. Með nýju arðgreiðslureglunni mun allur hagnaður Seðlabankans yfir hið ótilkynnta eiginfjársviðmið renna til ríkissjóðs. Fyrir utan vextina sem ríkið greiðir, og fær svo til baka, þá gæti þessi hagnaður verið töluvert mikill, m.a. vegna sölu á eignum sem Seðlabankinn eignaðist í hruninu. Þær eru í dag vistaðar í dótturfélagi bankans, Eignarsafni Seðlabanka Íslands.
Ef Seðlabankinn á hinsvegar slæmt ár, og eigið fé hans fer niður fyrir hið ákveðna viðmið, þá mun hagnaður bankans fyrst fara í að ná því aftur upp fyrir áður en arður er greiddur til ríkissjóðs. Tilgangurinn er að koma á betri reglu sem bregst fyrr við því hvernig eigið fé byggist upp. Samhliða á Seðlabankinn að fá aðgang að meira eigin fé frá ríkissjóði, ef hann þarf á því að halda, í gegnum hlutafjár- eða stofnfjárloforð sem yrði lögbundið. Bankinn gæti dregið á þetta fé án aðkomu fjármálaráðuneytisins eða Alþingis. Heimildir Kjarnans herma að til standi að lögin muni gilda frá og með næstu áramótum, verði þau samþykkt á Alþingi.