Ný lög leyfa einstaklingum að leigja út ökutækin sín í gegnum einkaleigu

b.lasala.jpg
Auglýsing

Á síð­ustu starfs­dögum yfir­stað­ins þings voru sam­þykkt lög sem gera ein­stak­lingum kleift að leigja út öku­tæki sín til ann­arra með milli­göngu sér­stakra leigu­miðl­una. Frum­varpið var lagt fram af Ragn­heiði Elínu Árna­dótt­ir, iðn­að­ar- og við­skipta­ráð­herra. Fyr­ir­tækið Vik­ingCars vekur athygli á sam­þykkt lag­anna með fjölda­pósti til fjöl­miðla í dag og segir lögin skapa svig­rúm fyrir fólk til að hafa tekjur af heim­il­is­bílnum sínum með útleigu. Fyr­ir­tækið hóf starf­semi fyrir ári síðan og er milli­göngu­að­ili um útleigu einka­bíla. „Fyr­ir­tækið stenst nú þegar allt sem ný lög fara fram á og við erum stolt af því,“ segir Sölvi Melax, fram­kvæmda­stjóri Vik­ingCars í til­kynn­ingu.

Sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Vik­ingCars má líkja þessu nýja fyr­ir­komu­lagi á útleigu einka­bíla við hús­næð­is­miðl­un­ina Air­bnb. „Nýju lögin skapa umgjörð utan um þá starf­semi þegar ein­stak­lingur leigir öku­tæki til ann­ars ein­stak­lings með milli­göngu miðl­un­ar. Með lög­unum er hverjum ein­stak­lingi heim­ilt að leigja út tvö öku­tæki í ótak­mark­aðan tíma á ári.

Auglýsing


Ein­stak­lingar sem leigja bíl sinn út hluta af ári geta betur mætt kostn­aði við rekstur hans. Flestir myndu vilja leigja bíla sína út á sumrin þegar það sjálft notar aðra ferða­máta svo sem hjól. Á sumrin er einnig eft­ir­spurnin mest og það er því þjóð­hags­lega hag­kvæmt og umhverf­is­vænt að nýta þá bíla­eign sem til er í land­inu. Í fyrra voru fluttir inn 10.462 nýir bílar til lands­ins og af þeim keyptu bíla­leigur og fyr­ir­tæki 62% þeirra. Ein­stak­lingar keyptu aðeins tæp­lega fjögur þús­und bíla eða 3.984. Við erum með einn elsta bíla­flota innan OECD land­anna og mögu­lega getur deili­hag­kerfið hjálpað okkur við að snúa þeirri þróun við.  Við þurfum einnig að mæta þörf vegna auk­innar ferða­þjón­ustu, en áætl­anir gera ráð fyrir að um 1.200 þús­und ferða­menn komi til Íslands um Kefla­vík­ur­flug­völl í ár,“ segir í til­kynn­ingu.



Taka þátt í Startup Reykja­vík



Vik­ingCars tekur í sumar þáttt í Startup Reykja­vík við­skipta­hraðl­in­um, sem aðstoðar frum­kvöðla við fyrstu skref í að koma nýjum hug­myndum í fram­kvæmd. Rúm­lega 60 bílar eru nú á skrá á vef­síðu fyr­ir­tæk­is­ins og fjölgar dag­lega, að því er segir í til­kynn­ingu til fjöl­miðla. „Við sem önn­umst milli­göngu um þessi við­skipti berum ábyrgð á að við­skiptin gangi fag­lega og greið­lega fyrir sig. Ábyrgð okkar sem eru millu­göngu­að­ilar er því nokkur og mik­il­vægt að vel sé að miðl­un­inni stað­ið. Við hjá Vik­ingCars höfum á því ári sem við höfum starfað gert samn­inga við öll trygg­ing­ar­fé­lög­in. Allir bílar sem við fram­leigjum eru tryggðir eins og um bíla­leigu­bíla sé að ræða meðan þeir eru í útleigu. Við önn­umst skrán­ingar öku­tækja í réttan notk­un­ar­flokk hjá Sam­göngu­stofu, göngum úr skugga um að öku­tæki hafi lög­bundna aðal­skoð­un, að ábyrgð­ar­trygg­ing sé í gildi og að öku­tækin hafi hlotið við­hald og eft­ir­lit og séu í ásig­komu­lagi sem tekur mið af árs­tíma og færð. Auk þess býður Vik­ingCars uppá vega­að­stoð ger­ist þess þörf meðan öku­tæki er í útleig­u.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None