Ný tillaga um viðræðuslit við ESB á leiðinni, líklega fyrir ríkisstjórn í næstu viku

000-Par2268902.jpg
Auglýsing

Ný til­laga um að slíta við­ræður við Evr­ópu­sam­bandið (ESB) verður lögð fyrir rík­is­stjórn á allra næstu fundum henn­ar. Næsti rík­is­stjórn­ar­fundur verður lík­lega ekki fyrr en í næstu viku sökum þess að nú stendur yfir kjör­dæma­vika. Vinna við til­lög­una er á loka­metr­unum í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

Blaðið hefur eftir heim­ild­ar­mönnum sínum innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins að sumir þeirra telji litla nauð­syn á fram­lagn­ingu til­lög­un­ar. Ljóst sé að hún muni taka tíma frá öðrum málum á Alþingi og tím­inn til þing­frest­unar sé naum­ur.

Össur Skarp­héð­ins­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, segir að með til­lög­unni séu for­ystu­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins að svíkja beinar yfir­lýs­ingar um að þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla yrði haldin um fram­hald við­ræðna. "Ef menn ætla að svíkja beinar yfir­lýs­ingar um þetta verður því mætt með eldi og brenni­stein­i".

Auglýsing

Meiri­hluti lands­manna vilja ekki slíta við­ræðum



Meiri­hluti lands­manna vill ekki að aðild­ar­um­sókn að Evr­ópu­sam­band­inu verði dregin til baka, sam­kvæmt nýlegri könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir sam­tökin Já Ísland. 35,7 pró­sent vilja að umsóknin verði dregin til baka en 11,1 pró­sent sögðust hvorki vera fylgj­andi né and­víg­ir.

Sam­kvæmt könnun Capacent Gallup hafa heldur aldrei fleiri verið hlynntir því að Ísland verði aðili að sam­band­inu en nú, eða 46,2 pró­sent. Tæp 54 pró­sent svar­enda voru and­vígir aðild.

Mikil mót­mæli í fyrra



Nokkur þús­und manns mót­mæltu nokkrar helgar í röð í febr­úar og mars á síð­asta ári í kjöl­far þess að Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra lagði fram til­lögu um að slíta við­ræðum við ESB. Frum­varpið var lagt fram í kjöl­far birt­ingar skýrslu sem Hag­fræði­stofnun Háskóla Íslands gerði um við­ræð­urn­ar. Sam­kvæmt henni vor­u veru­lega litlar líkur á því að Ísland geti fengið und­an­­þágur frá grunn­reglu­verki ESB. Skömmu síðar kom útskýrsla Alþjóða­stofn­unar Háskóla Íslands sem sýndi allt aðra nið­ur­stöðu og sagði að Ísland hefði þegar náð fram ýmis konar und­an­þág­um.

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra er staddur erlendis og verður ekki til viðtals fyrr en fimmtudag. Hann mun leggja fram nýja tillögu um viðræðuslit. Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra er staddur erlendis og verður ekki til við­tals fyrr en fimmtu­dag. Hann mun leggja fram nýja til­lögu um við­ræðu­slit.

Skipu­leggj­endur mót­mæl­end­anna, og margir þátt­tak­end­anna í þeim, töldu að stjórn­ar­flokk­arnir tveir, Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokk­ur, hefðu lofað því fyrir síð­ustu kosn­ingar að slíta ekki við­ræðum við ESB nema að und­an­geng­inni þjóð­ar­at­kvæð­ar­greiðslu um mál­ið.

Að end­ingu var til­lagan svæfð í nefnd.

Ný til­laga legið í loft­inu



Legið hefur ljóst fyrir und­an­farnar vikur að ný til­laga væri á leið­inni. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra ljáði máls á því í lok síð­asta árs og Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra, sagði á Alþingi þann 20. jan­úar að hann gerði ráð fyrir því að ný til­laga yrði lögð fram innan fárra daga.

Hann kall­aði jafn­­framt eft­ir efn­is­­legri umræðu um það hvað það þýði fyr­ir Ísland að ganga í Evr­­ópu­­sam­­band­ið.

 

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None