Nýr forstjóri Menntamálastofnunar ráðinn og tilkynnt um að stofnunin verði lögð niður

Þórdís Jóna Sigurðardóttir, fyrrverandi framkvæmdastýra Hjallastefnunnar, hefur verið ráðin forstjóri Menntamálastofnunar. Til stendur að leggja stofnunina niður og stofna aðra. Þórdís mun stýra nýju stofnuninni.

Þórdís Jóna Sigurðardóttir
Auglýsing

Ásmundur Einar Daða­son, mennta- og barna­mála­ráð­herra, hefur til­kynnt að Þór­dís Jóna Sig­urð­ar­dótt­ir, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stýru Hjalla­stefn­unn­ar, sem nýjan for­stjóra Mennta­mála­stofn­un­ar. Sam­hliða hefur verið til­kynnt um viða­miklar breyt­ingar sem ráð­ist verður í á mennta­kerf­inu, sem felur meðal ann­ars í sér að Mennta­mála­stofnun verður lögð nið­ur. 

Í stað hennar verður ný stofnun sett á lagg­irn­ar. Í til­kynn­ingu á vef ráðu­neyt­is­ins segir að hlut­verk nýrrar stofn­unar sé að tryggja að „tryggja gæði mennt­unar og aðgengi allra nem­enda, for­eldra og starfs­fólks skóla að sam­þættri, heild­stæðri skóla­þjón­ustu á leik-, grunn- og fram­halds­skóla­stig­i“.

Þór­dís mun leiða þá nýju stofnun sem sett verður á fót eftir að Mennta­mála­stofnun verður lögð niður og ráðn­ing hennar gildir til fimm ára. All sóttu 14 um starf for­stjóra Mennta­mála­stofn­un­ar.

Þór­dís sótt­ist eftir að leiða lista Við­reisnar í Reykja­vík­ur­borg fyrir síð­ustu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar en náði ekki því mark­miði. Þess í stað var hún í þriðja sæti fram­boðs­list­ans. Stundin greindi frá því í síð­asta mán­uði að Þór­dís hafi verið keypt út úr Hjalla­stefn­unni, en hún átti hluta­bréf í fyr­ir­tæk­inu, eftir að hún lauk þar störfum fyrir 55 millj­ónir króna.

Ætla að kynna viða­miklar breyt­ingar í hádeg­inu

Í til­kynn­ingu mennta- og barna­mála­ráðu­neyt­is­ins segir að í dag verði kynntar viða­miklar breyt­ingar sem ráð­ist verður í á mennta­kerf­inu. Þær verða kynntar í hádeg­inu í dag á blaða­manna­fundi. Auk nið­ur­lagn­ingar mennta­stofn­unar og nýrri stofnun í hennar stað fela þær þó meðal ann­ars í sér, sam­kvæmt til­kynn­ingu, að skóla­þjón­usta verði styrkt þvert á skóla­stig með nýjum heild­ar­lögum um skóla­þjón­ustu. „Hlut­verk nýrrar stofn­unar er að tryggja gæði mennt­unar og aðgengi allra nem­enda, for­eldra og starfs­fólks skóla að sam­þættri, heild­stæðri skóla­þjón­ustu á leik-, grunn- og fram­halds­skóla­stig­i.“

Auglýsing
Þórdís Jóna er með B.A.-­próf í stjórn­mála­fræði og M.A.-­próf í félags­fræði frá Háskóla Íslands og MBA-­próf frá Vler­ick Business School. Þá hefur hún einnig lokið leið­toga­námi og námi í inn­leið­ingu stefnu­mót­unar frá Harvard Business School.

Í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins segir að hún hafi umfangs­mikla reynslu af fjöl­breyttum umbreyt­ing­ar­verk­efnum innan mennta­kerf­is­ins og víðar og starfað við góðan orðstír. „Þar má nefna upp­bygg­ingu MBA-­náms og stjórn­enda­skóla Háskól­ans í Reykja­vík; end­ur­skipu­lagn­ingu fjár­mála, stjórn­unar og skipu­lags í Hjalla­stefn­unni; stefnu­mót­un, sam­ein­ingu og end­ur­skipu­lagn­ingu fjölda fyr­ir­tækja, íslenskra sem erlendra; auk aðkomu að end­ur­skipu­lagn­ingu, mótun og inn­leið­ingu stefnu hjá fjölda stofn­ana.

Á starfs­ferli sínum hefur Þór­dís Jóna komið að verk­efnum úr ólíkum áttum m.a. sem fram­kvæmda­stjóri, for­stjóri, stjórn­ar­maður og stjórn­ar­for­mað­ur. Víð­tæk og umfangs­mikil reynsla Þór­dísar mun nýt­ast einkar vel í þeim verk­efnum sem framundan eru við mótun nýrrar stofn­unar sem ætlað er að styðja heild­stætt við skóla­þróun og far­sæld barna til fram­tíð­ar.“

Engin heild­ar­lög­gjöf til staðar

Í til­kynn­ing­unni er haft eftir Ásmundi Ein­ari að engin heild­ar­lög­gjöf sé til staðar um skóla­þjón­ustu fyrir leik-, grunn- og fram­halds­skóla og að engin mið­læg stofnun sé með skil­greint hlut­verk að fram­kvæma og sam­hæfa þessa þjón­ustu. „Að­gengi að þjón­ustu og ráð­gjöf er mis­mun­andi, bæði milli og innan skóla­stiga og sveit­ar­fé­laga, sem leiðir til ójafn­ræð­is,“ segir Ásmund­ur. „Við þurfum að sam­hæfa kerfin til að tryggja yfir­sýn, skil­virkni og gæði þjón­ust­unn­ar, svo sem þegar nem­endur flytj­ast á milli skóla eða fær­ast milli skóla­stiga. Meiri ráð­gjöf við starfs­fólk skóla og stuðn­ingur við skóla­starfið leiðir til hrað­ari og skil­virk­ari úrræða fyrir börn og ung­menni. Allt sem við gerum á að miða að far­sæld þeirra.“

Mark­mið nýrra laga um skóla­þjón­ustu verði að tryggja öllum skólum fag­legt bak­land í sínum fjöl­breyttu verk­efnum ásamt því að efla þver­fag­lega sam­vinnu milli skóla-, félags- og heil­brigð­is­þjón­ustu í þágu nem­enda.

Ný stofnun muni taka við hluta verk­efna Mennta­mála­stofn­unar en eft­ir­lit með skóla­starfi verði aðgreint frá þjón­ustu og ráð­gjöf og fær­ist til mennta- og barna­mála­ráðu­neyt­is­ins fyrst um sinn.

Áformin verða kynnt í sam­ráðs­gátt stjórn­valda seinna í dag. Í kjöl­farið er fyr­ir­hugað að eiga víð­tækt sam­ráð við hag­hafa um verk­efni nýrrar stofn­unar og útfærslu skóla­þjón­ustu til fram­tíð­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent