Tölvuleikjafyrirtækið CCP, framleiðandi netleiksins EVE Online, mun á næstu dögum kynna nýjan tölvuleik, Gunjack að nafni, á Gamescom ráðstefnunni sem hefst í Köln í Þýskalandi á morgun. Leikurinn er sýndarveruleikaleikur fyrir farsíma og hannaður fyrir nýjan útbúnað farsímaframleiðandans Samsung, Samsung Gear VR. Leikurinn leit fyrst dagsins ljós sem prufuútgáfa á EVE Fanfest hátíðinni í Reykjavík í maí síðastliðnum. Þar gafst gestum hátíðarinnar færi á að prófa ýmsar leikjatilraunir CCP í sýndarveruleika í sérstökum tilraunastofum, VR Labs. Í ljósi jákvæðra viðbragð viða prufuútgáfunni var ákveðið að halda áfram með þróun verkefnisins og úr varð leikurinn Gunjack.
Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri CCP, segir að fyrirtækið ætli að vera í fararbroddi á sviði sýndarveruleika. „Við trúum því að sýndarveruleiki, VR, sé einn af lykilþáttum leikjaframleiðslu framtíðarinnar. Það mun ef til vill taka einhvern tíma þar til þetta nýja form nær almennri útbreyðslu, en við hjá CCP ætlum okkur að halda áfram að vera í fararbrodd á þessu sviði. Þannig að þegar þessi tækni nær enn frekari fótfestu þá verði það leikir okkar sem sýni hvað best hverskonar upplifun hún getur fært notendum sínum,“ segir Hilmar Veigar í tilkynningu.
Í tilkynningu frá CCP kemur fram að leikurinn sé þróaður á skrifstofu fyrirtækisins í Shanghaí í Kína. Leikurinn gerist í EVE heiminum og býður spilurum upp á hraða og spennandi atburðarrás í fallegu og grípandi framtíðarumhverfi, að því er CCP segir.
„Markmið okkar var hvorki meira né minna en að skapa besta leikinn fyrir Gear VR búnaðinn. Fólkið sem sem vann að leiknum lagði áherslu á að skapa eins spennandi og fallegan leik fyrir þennan nýja vettvang og og mögulegt er. - og við erum mjög stolt af útkomunni,” segir Jean-Charles Gaudechon, framleiðslustjóri Gunjack, í Shanghai.
Á ráðstefnunni í Köln, sem er sú stærsta sinnar tegundar í Evrópu, mun CCP einnig kynna væntanlegan leik sinn EVE:Valkyrie. Leikurinn kemur út fyrir Playstation 4 leikjavélar og fyrir sýndarveruleikabúnað Oculus Rift á PC tölvum.