Óáþreifanlegur kostnaður þess að verða fyrir ofbeldi nemur milljónum á ári

Emil Dagsson ræðir við Hjördísi Harðardóttur um rannsókn á óáþreifanlegum kostnaði ofbeldis í nýjasta þætti Ekon. Hjördís telur rannsóknir á borð við þessa gefa stjórnvöldum betri tól til þess að bæta forvarnir í slíkum málaflokkum.

Ekon er viðtalsþáttur um hagfræðileg málefni sem gefinn er út á Hlaðvarpi Kjarnans.
Ekon er viðtalsþáttur um hagfræðileg málefni sem gefinn er út á Hlaðvarpi Kjarnans.
Auglýsing

Þolendur and­legs, lík­am­legs og kyn­ferð­is­legs ofbeldis verða fyrir óáþreif­an­legum kostn­aði sem nemur allt að sex millj­ónum króna á hverju ári. Þetta eru á meðal nið­ur­staðna rann­sókn­ar­hóps­ins ConCIV í hag­fræði­deild Háskóla Íslands.

Hjör­dís Harð­ar­dótt­ur, sem er nýdoktor í Háskóla Íslands og með­limur ConCIV, greindi frá þessum nið­ur­stöðum og starf­semi hóps­ins í þriðja þætti Ekon, sem sjá má hér fyrir neð­an. Í þátt­un­um, sem einnig má nálg­ast í Hlað­varpi Kjarn­ans, fær hag­fræð­ing­ur­inn Emil Dags­son til sín sér­fræð­inga úr ýmsum áttum till að fjalla um hag­fræði­leg mál­efni og önnur mál tengd íslenskum efna­hag.

Betri aðferð til að meta miska­bætur

Sam­kvæmt Hjör­dísi geta nið­ur­stöður um óáþreif­an­legan kostnað ofbeldis verið mik­il­vægar sam­fé­lag­inu á margan hátt. Til dæmis gæti dóms­kerfið haft slíka útreikn­inga til hlið­sjónar þegar ákvarða á miska fyrir ofbeldi, en stjórn­völd gætu líka notað þá til þess að ákvarða hversu miklum hluta almanna­fjár ætti að verja í ofbeld­is­for­varn­ir.

Auglýsing

Aðferð­irnar sem ConCIV notar til þess að meta slíkan kostnað eru til­tölu­lega nýjar, en Hjör­dís segir að þær aðferðir sem hafa verið not­aðar áður hafa oftar mælt áhrifin óbeint. Sem dæmi um slíkar aðferðir er hug­lægt mat kvið­dóms í dóms­málum í Banda­ríkj­un­um.

ConCIV not­ast hins vegar við töl­fræði­legt mat þar sem reynt er að áætla hversu mikla tekju­aukn­ingu þolendur ofbeldis þyrftu til að bæta fyrir það vel­ferð­ar­tap sem þeir verða fyr­ir. Nú þegar hefur hóp­ur­inn birt rann­sóknir um nei­kvætt virði sven­fleysis og áfeng­is­neyslu, en þær rann­sókn­ir, ásamt fleirum má nálg­ast á heima­síðu ConCIV.

Hjördís Harðardóttir, nýdoktor í hagfræði við Háskóla Íslands.

Nið­ur­stöður ConCIV af óáþreif­an­legum kostn­aði ofbeldis benti til þess að hann næmi að með­al­tali 6 millj­ónum króna á ári vegna and­legs ofbeld­is, 3 millj­ónir króna á ári vegna kyn­ferð­is­legs ofbeldis og 1,5 millj­ónir króna á ári vegna lík­am­legs ofbeld­is.

Þætt­irnir Ekon eru styrktir af Háskóla Íslands, sem styður vís­inda­menn til virkrar þátt­töku í sam­fé­lag­inu í krafti rann­sókna þess og sér­þekk­ing­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent