Samtök iðnaðarins segja peningastefnunefnd verða að „fara varlega“

Í greiningu frá Samtökum iðnaðarins segir að það væri skynsamlegt hjá peningastefnunefnd Seðlabankans að hækka ekki stýrivexti við vaxtaákvörðunina sem er framundan á miðvikudaginn. Íslandsbanki spáir óbreyttum vöxtum.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar.
Auglýsing

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­bank­ans mun á mið­viku­dag­inn, 25. ágúst, kynna nýja vaxta­á­kvörðun sína. Sam­tök iðn­að­ar­ins (SI) vara við því að vextir verði hækk­að­ir, í grein­ingu sem birt er á vef sam­tak­anna í dag. Við síð­ustu vaxta­á­kvörðun pen­inga­stefnu­nefndar í maí voru stýri­vextir hækk­aðir um 0,25 pró­sentu­stig og standa nú í 1 pró­senti.

Í grein­ingu SI, sem sett er fram undir yfir­skrift­inni „Hyggi­legt að hækka ekki vexti“ segir að ljóst sé að verð­bólgan sem nú mælist 4,3 pró­sent sé að stórum hluta tíma­bundin og að góðar líkur líkur séu á að hún hjaðni nokkuð hratt á næst­unni, en að vegna stöðu COVID-far­ald­urs­ins sé mikil óvissa um efna­hags­horf­ur.

„Bólu­setn­ing hefur ekki skilað þeim árangri sem von­ast var eftir og nýtt afbrigði veirunnar er í mik­illi útbreiðslu bæði hér á landi og erlend­is. Efna­hags­bat­inn sem nú má greina í hag­tölum er því brot­hætt­ur. Atvinnu­leysi er enn umtals­vert og lang­tíma­at­vinnu­leysi áhyggju­efni. Þrátt fyrir að eft­ir­spurn hafi tekið við sér eru mörg fyr­ir­tæki enn að glíma við mjög erf­iðar afleið­ingar efna­hags­nið­ur­sveifl­unn­ar. Mik­il­vægt er að mati SI að pen­inga­stefnu­nefndin leyfi efna­hags­bat­anum að njóta vafans um þessar mundir og fari hægt í hækkun vaxta,“ segir í grein­ingu SI.

Sam­tökin segja að í ljósi þess að enn séu þrír vaxta­á­kvörð­un­ar­dagar eftir til ára­móta hafi pen­inga­stefnu­nefnd „svig­rúm til að fara sér hægt“ hvað vaxta­hækk­anir varð­ar. Mat sam­tak­anna er að ekki ætti að hækka vexti núna á mið­viku­dag­inn og segir í grein­ingu þeirra að skað­inn sem fylgir „hörðum aðgerðum í pen­inga­mál­um“ sé um þessar mundir mun meiri en ávinn­ing­ur­inn.

Auglýsing

„Við þessar aðstæður stendur pen­inga­stefnu­nefndin frammi fyrir því vali að ná verð­bólg­unni niður hratt eða styðja efna­hags­batann. Ljóst er að vaxta­hækk­anir munu hafa mikil áhrif á bæði fyr­ir­tæki og heim­ili og hægja mjög á efna­hags­bat­an­um. Kemur vaxta­hækk­unin sér­stak­lega hart niður á skuld­settum fyr­ir­tækum og heim­il­um, þ.m.t. þeim sem hafa orðið illa úti efna­hags­lega í far­aldr­in­um. Hækkun vaxta dregur úr fjár­fest­ingum fyr­ir­tækja og heim­ila sem fyrir eru litl­ar. Kostn­aður harðra aðgerða í pen­inga­málum til að snúa verð­bólg­una snar­lega niður er því mjög mik­ill,“ segir í grein­ingu SI.

Þar kemur fram að verð­bólgan sé farin að hjaðna og spár geri ráð fyrir því að hún muni hjaðna nokkuð hratt á næstu mán­uð­um, auk þess sem mark­aðs­að­ilar á fjár­mála­mark­aði hafi vænt­ingar um hratt hjaðn­andi verð­bólgu á næst­unni.

Hrá­vörur og hús­næð­is­verð

Í grein­ingu sam­tak­anna segir að hjaðn­andi verð­bólga og vænt­ingar um frek­ari lækkun end­ur­spegli þá trú að hluti verð­bólg­unnar sé vegna tíma­bund­inna þátta tengdum efna­hags­á­hrifum far­ald­urs­ins – sem séu utan áhrifasviðs Seðla­bank­ans.

Samtök iðnaðarins hvetja peningastefnunefnd til að hækka ekki stýrivexti. Mynd: SI

Þannig hafi far­ald­ur­inn stuðlað að veru­legum verð­hækk­unum ýmissa aðfanga, ekki síst hrá­vöru.

„Ol­íu­verð hefur t.d. hækkað veru­lega og umtals­verðar hækk­anir hafa orðið á flutn­ings­kostn­aði. Aðföng sem nýtt eru í iðn­aði hafa t.d. hækkað umtals­vert af þessum sök­um. Margt bendir til þess að hér sé um tíma­bundin áhrif að ræða. Verð á timbri hefur t.d. þegar lækkað umtals­vert eftir að hafa hækkað veru­lega frá upp­hafi Covid far­ald­urs­ins. Rétt­ast er að mati SI að pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­bank­ans sleppi þessum áhrifum á verð­bólg­una í gegn án aðgerða. Í ljósi verð­bólgu­vænt­inga er nefndin einnig í stöðu til þess,“ segir í grein­ingu sam­tak­anna.

Þá segja sam­tökin einnig að það virð­ist nú vera að draga úr hækkun hús­næð­is­verðs, sem hafi verið vax­andi þáttur í verð­bólg­unni að und­an­förnu. Ljóst sé að áhrif vaxta­hækk­un­ar­innar í maí og lækk­unar veð­setn­ing­ar­hlut­falls sé þar að hafa áhrif og muni áfram gera á næst­unni.

Sér­fræð­ingar Íslands­banka spá óbreyttum vöxtum

Grein­ing Íslands­banka spáir því að pen­inga­stefnu­nefnd muni halda stýri­vöxtum óbreyttum við vaxta­á­kvörðun sína á mið­viku­dag­inn.

Í spánni frá bank­anum, sem birt var á föstu­dag, segir að talið sé að aukin óvissa um efna­hags­batann á kom­andi mán­uðum vegna bakslags í COVID-19 far­aldr­inum muni vega þyngra í huga nefnd­ar­manna en þrá­lát­ari verð­bólga og versn­andi nær­horfur um verð­bólgu.

„Það dregur líka úr ógn­inni sem pen­inga­stefn­unni stafar af verð­bólgu­þró­un­inni að kjöl­festa lang­tíma verð­bólgu­vænt­inga virð­ist enn sem komið er til­tölu­lega stöðug við mark­mið bank­ans,“ sagði í grein­ingu bank­ans.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent