Samherji gerir hundruð milljóna kröfu í þrotabú í Færeyjum

Á slitafundi færeyska félagsins Tindhólms á föstudag var ekki tekin afstaða til rúmlega 340 milljóna kröfu frá Samherja í búið. Þetta er féð sem Samherji hefur lagt fram sem tryggingafé í Færeyjum vegna „mistaka“ sem fyrirtækið segir að hafi verið gerð.

Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja.
Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja.
Auglýsing

Sjáv­ar­út­vegs­fé­lagið Sam­herji setti fyrr á árinu fram kröfu um að fá tæpar 17 millj­ónir danskra króna, jafn­virði rúm­lega 340 millj­óna íslenskra króna, úr þrota­búi fær­eyska félags­ins Tind­hólms. Það er félag sem dótt­ur­fé­lag Sam­herja á Kýpur stofn­aði í Fær­eyjum fyrir um ára­tug síð­an.

Þetta eru pen­ing­arnir sem Sam­herji lét fær­eyskum yfir­völdum í té eftir að sagt var frá því að Tind­hólmur hefði verið með sjó­menn sem voru að fiska við strendur Namibíu á launa­skrá og skráða sem far­menn á flutn­inga­skipum undir fær­eyskum fána.

Fær­eyska Kringvarpið sagði frá því um helg­ina að á skipta­fundi í þrota­búi Tind­hólms á föstu­dag hefði ekki verið tekin afstaða til þess­arar kröfu frá Sam­herja. Ástæðan væri sú að lög­reglan hefði ekki enn rann­sakað mál­ið, en greint var frá því í vor að TAKS, fær­eyski skatt­ur­inn, hefði til­kynnt málið til lög­reglu.

Auglýsing

Málið kom upp í mars­mán­uði þegar fyrri hluti heim­ild­ar­myndar um umsvif Sam­herja í Fær­eyjum var sýnd er í fær­eyska sjón­varp­inu. Hún var unnin í sam­starfi við Kveik og Wiki­leaks.

Í heim­ild­ar­mynd­inni kom fram að Íslend­ingur úr áhöfn tog­ara í eigu Sam­herja, sem gerður var út í Namib­íu, fékk laun sín greidd frá fær­eyska félag­inu og hefði auk þess verið rang­lega skráður í áhöfn fær­eysks flutn­inga­skips í eigu Sam­herja, en útgerðum býðst 100 pró­sent end­ur­greiðsla á skatt­greiðslum áhafna slíkra skipa.

Fjallaðar var um málið í fyrri hluta heimildarmyndarinnar Teir ómettiligu. Skjáskot: KVF

Þannig er talið að málum hafi verið háttað með fleiri sjó­menn sem unnu fyrir Sam­herja í Namib­íu. Fyrir vikið greiddu sjó­menn­irnir ekki skatta í Namibíu og Sam­herji þurfti því ekki að bæta þeim upp tekju­tap vegna slíkra skatt­greiðslna.

Sagt var frá því í byrjun maí að Sam­herji hefði greitt jafn­virði 340 millj­óna íslenskra króna til fær­eyskra yfir­valda vegna máls­ins.

Í frétt Kringvarps­ins kemur fram að það liggi ekki fyrir hvort Sam­herji fái kröf­una sam­þykkta og millj­ón­irnar til baka úr þrota­búi Tind­hólms, sem reyndar hefur verið sagt eigna­lít­ið. Fram kemur í frétt Kringvarps­ins að á skipta­fund­inum hafi aðrar kröfur félaga Sam­herj­a­sam­stæð­unnar í þrotabú Tind­hólms verið sam­þykkt­ar, að and­virði um 12 millj­óna danskra króna alls. Til stendur að ljúka slita­með­ferð­inni þann 8. októ­ber.

Sam­herji sagði „mi­s­tök“ hafa verið gerð

Í yfir­lýs­ingu og afsök­un­ar­beiðni sem birt­ist á vef Sam­herja 22. júní sagði að í ljós hefði komið að „mi­s­tök“ hefðu verið gerð í rekstri Sam­herja, sem tengst hefðu alþjóð­legri skipa­skrá sem haldin væri í Fær­eyj­um.

„Ekki liggur enn fyrir af neinni nákvæmni hver þau mis­tök eru en Sam­herji hefur greitt trygg­ing­ar­fjár­hæð sem verður til staðar þegar nið­ur­staða er feng­in. Við viljum leið­rétta þau mis­tök sem þarna voru gerð og biðj­ast vel­virð­ingar á þeim. Von­andi fæst nán­ari nið­ur­staða í þessi mál fljótt og greið­lega,“ sagði í yfir­lýs­ingu fyr­ir­tæk­is­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent