Ódýrast að panta flug 47 dögum fyrir brottför

000-APW1042464.jpg
Auglýsing

Vilji fólk greiða sem minnst fyrir flug­far­gjöld, þá er að með­al­tali ódýr­ast að kaupa flug­miða 47 dögum fyrir brott­för, sam­kvæmt grein­ingu ferða­leit­ar­vél­ar­innar CheapA­ir.com á nærri fimm millj­ónum flug­ferða árið 2014. Árið áður var best að kaupa flug­miða 54 dögum fyrir brott­för.

CheapAir kann­aði verð­breyt­ingar á flug­far­gjöldum allt að 320 dögum fyrir brott­för. Í flestum til­fellum bók­uðu kaup­endur flug einum til fjórum mán­uðum fyrir ferð­ina. Hvað ein­staka viku­daga varðar þá er ódýr­ast að fljúga á þriðju­dögum og mið­viku­dögum en dýr­ast á sunnu­dögum og föstu­dög­um.

Auglýsing

Mun ódýr­ara ef keypt er á réttum tíma

Fjallað er um grein­ingu CheapAir á vef­síðu CNN.  Haft er eftir for­stjóra félags­ins að þótt allir vilji fá nákvæmt svar við því hvenær best sé að bóka miða, þá sé málið ekki svo ein­falt.  Ótal­margt hafi áhrif á verð flug­miða, eins og árs­tími, áfanga­staður og við­burð­ir.



Grein­gin sýnir þó fram á að sé flug­miði keyptur á lægsta mögu­lega verði, þá nemur sparn­að­ur­inn að með­al­tali 201 doll­ara, jafn­virði um 26 þús­und króna. Er þá ekki litið til miða­verðs tveimur vikur fyrir brott­för, en þá er verð jafnan í hæstu hæð­um.

Ekki kaupa of seint né of snemma

Þessar upp­lýs­ingar hjálpa kaup­endum lítið við það að ákveða hvenær nákvæm­lega best er að kaupa flug­miða – að öðru leyti en að með­al­tali sé það best 47 dögum fyrir brott­för.



Í það minnsta er víst að ekki borgar sig að kaupa flug­miða stuttu fyrir ferða­lag­ið. Miða­verð innan við tveimur vikum fyrir brott­för er að jafn­aði 15 þús­und krónum dýr­ara en ann­ars og á síð­ustu sjö dögum fyrir brott­för er verðið að jafn­aði 23 þús­und krónum dýr­ara en það var með lengri fyr­ir­vara.



Þá borgar sig heldur ekki að kaupa mið­ann of snemma.  Þegar flug­miðar eru fyrst settir í sölu þá eru þeir um 50 doll­urum hærri en lægsta verð. Raunar breyt­ist „lægsta gjald“ að með­al­tali um 70 sinnum frá því því að flug­fé­lög hefja sölu. Ástæðan fyrir tíðum breyt­ingum á lægsta verði er einkum taktík flug­fé­lag­anna að lækka verðið tíma­bundið til þess að selja fleiri sæti.



Kjarn­inn og Stofnun um fjár­mála­læsi hafa tekið höndum saman og munu fjalla ítar­lega um heim­il­is­fjár­mál sam­hliða þátt­unum Ferð til fjár, sem sýndir verða á RÚV næstu vik­ur. Mark­mið­ið: Að stuðla að betra fjár­mála­læsi hjá lands­mönn­um! Næsti þáttur er á dag­skrá fimmtu­dag­inn 19. febr­ú­ar. Fylgstu með á Face­book-­síðu Ferðar til fjár.



ferd-til-fjar_bordi

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None