Ólafur Ólafsson var dæmdur í fangelsi á grundvelli misskilnings, segir eiginkona hans

domsmal-sigurdur.03-1.jpg
Auglýsing

Ingi­björg Krist­jáns­dótt­ir, eig­in­kona Ólafs Ólafs­son­ar, segir að eig­in­maður sinn hafi verið dæmdur í fjög­urra og hálfs árs fang­elsi í Hæsta­rétti í Al Than­i-­mál­inu svo­kall­aða á grund­velli mis­skiln­ings. Þetta kemur fram í grein sem hún ritar í Frétta­blaðið í dag sem ber heitið „Al Thani dóm­ur­inn og nið­ur­staða Hæsta­rétt­ar“.

Í grein­inni segir að í upp­hafs­for­sendur dóms­ins vísi Hæstiréttir til sím­tals í gögnum máls­ins þar sem ítrekað komi fram að rætt hafi verið við „Óla“ um nákvæma útfærslu við­skipt­anna. „Hæsti­réttur fer manna­villt í rök­stuðn­ingi sínum og ályktar að hér sé átt við eig­in­mann minn, Ólaf Ólafs­son, en hið rétta er að um er að ræða lög­fræð­ing með sama for­nafni sem er sér­fræð­ingur í lögum um kaup­hall­ar­við­skipt­i,“ segir Ingi­björg í grein sinni. Hún full­yrðir að bæði ákæru­valdið og hér­aðs­dómur hafi áttað sig á því að umrætt sím­tal var ekki við Ólaf, eig­in­mann henn­ar.

Ingi­björg telur þennan mis­skiln­ing vera grafal­var­legan þar sem Hæsti­réttur dragi, að hennar mati, mjög víð­tækar álykt­anir af sam­tal­inu strax í upp­hafi dóms síns.

Auglýsing

Hún veltir einnig fyrir sér af hverju Al Than­i-frænd­urnir tveir, sem málið er kennt við, voru ekki ákærð­ir. „Ef við gefum okkur að ákæran sé sann­leik­anum sam­kvæm, þá hljóta þessir menn að vera jafn sekir og aðrir er tengj­ast mál­in­u.“ Kjarn­inn skrif­aði frétta­skýr­ingu um ástæður þess skömmu eftir að dóm­ur­inn féll.

Opin­ber umræða hafði úrslita­á­hrif



Ingi­björg segir að Al Than­i-­málið hafi snemma lent í brennid­epli umræðu sem hafi mót­ast af miklum til­finn­inga­hita og reiði sem hafi komið í kjöl­far banka­hruns­ins. Hún hafi hins vegar alltaf staðið í þeirri trú að „op­in­ber umræða myndi ekki hafa úrslita­á­hrif á fag­lega vinnu dóm­ara Hæsta­rétt­ar. Ég trúði því og treysti að þeir stæðu fast á gildum rétt­ar­rík­is­ins að við­lögðu dreng­skap­ar­heiti sínu. Nið­ur­staða Hæsta­réttar kom því sem reið­ar­slag og gengur gegn gögnum máls­ins.“

Ingi­björg segir dóm­ara Hæsta­réttar allt í senn hafa klæðst fötum rann­sak­enda, sak­sókn­ara og dóm­ara í mál­inu. Það sé hins vegar nauð­syn­legt að tjá sig, gagn­rýna og segja skoðun sína, enda sé það einn af horn­steinum rétt­ar­rík­is­ins.  „Að mínu mati er þöggun um jafn­mik­il­vægt mál­efni hættu­leg sam­fé­lag­inu, hættu­leg leið til að kom­ast upp með ofbeldi af verstu teg­und.“

Frétta­blaðið ræðir einnig í for­síðu­frétt um grein­ina við lög­mann Ólafs, Þórólf Jóns­son. Hann seg­ist ekki geta séð annað en að miðað við orða­lag Hæsta­réttar þá sé mis­skiln­ingur að ræða varð­andi hvaða „Óla“ sé verið að ræða við og að „úr­slit máls­ins hefðu getað orðið önnur ef réttur skiln­ingur hefði verið á.“ Um sé að ræða grund­vall­ar­at­riði sem margt í mál­inu hvíli á. Næstu skref séu til skoð­un­ar. Hægt sé að óska eftir end­ur­upp­töku á grund­velli mis­skiln­ings.

Ingibjörg segir að ákæruvaldið hafi vitað að um rangan Óla hafi verið að ræða. Ólafur Þór Hauksson er sérstakur saksóknari. Ingi­björg segir að ákæru­valdið hafi vitað að um rangan Óla hafi verið að ræða. Ólafur Þór Hauks­son er sér­stakur sak­sókn­ari.

Aðstand­endur fóru saman yfir dóm­inn



Ingi­björg skipu­lagði fund með aðstand­endum sak­born­inga í mál­inu sem fram fór á Hilton hót­el­inu snemma í mars. Um 250 manns mættu á fund­inn. Við­skipta­blaðið greindi frá því á sínum tíma. Í umfjöllun blaðs­ins sagði að verj­andi Hreið­ars Más Sig­urðs­son­ar, Hörður Felix Harð­ar­son, og verj­andi Sig­urðar Ein­ars­son­ar, Ólafur Eiríks­son, hafi tekið til máls á fund­inum og farið yfir dóm­inn. Auk þess mætti Jón Steinar Gunn­laugs­son, fyrrum hæsta­rétt­ar­dóm­ari, á fund­inn og lýsti skoðun sinni á dómn­um.

Ólafur sagði sjálfur í sam­tali við Reuters frétta­stof­una skömmu eftir að dóm­ur­inn féll að íslenskir stjórn­mála­menn hafi gert banka­geir­ann að blóra­böggli fyrir þeirra eigin mis­tök­um. „Ég held að dóm­ar­arnir hafi fyrst ákveðið hver útkoman ætti að vera og svo skrifað dóminn“.

„Ís­land er mjög lítil land…­Veggirnir á milli stjórn­mála­manna og emb­ætt­is­manna eru þunn­ir. Stjórn­mála­menn­irnir ákváðu að setja allan fókus á banka­geirann, en að rann­saka ekki það sem aflaga fór í efna­hags­kerf­inu, sem er á þeirra ábyrgð“.

Ingibjörg veltir fyrir sér í grein sinni af hverju Al Thani-frændurnir voru ekki ákærðir. Ingi­björg veltir fyrir sér í grein sinni af hverju Al Than­i-frænd­urnir voru ekki ákærð­ir.

Alvar­leg­ustu efna­hags­brot Íslands­sög­unnar



Dómur féll í Al Than­i-­mál­inu þann 12. febr­úar síð­ast­lið­inn. Þar voru þeir Sig­urður Ein­ars­son, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Kaup­þings, Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, Magnús Guð­munds­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings í Lúx­em­borg, og Ólafur Ólafs­son, sem átti tæp­lega tíu pró­sent hlut í Kaup­þingi fyrir fall hans, voru allir dæmdir sek­ir. Hreiðar Már fékk fimm og hálfs árs fang­elsi, Sig­urður fjögur ár, Ólafur og Magn­ús ­fjögur og hálft ár.

Al-T­hani mál­ið, sem er eitt umfangs­mesta efna­hags­brota­mál sem komið hefur á borð dóm­stóla hér á landi, á rætur að rekja til hluta­bréfa­kaupa sheikh Mohammad Bin Khalifa Al-T­hani frá Katar hinn 22. sept­em­ber 2008 en félag hans keypti 5,01 pró­senta hlut í Kaup­þingi banka fyrir 25,7 millj­arða króna með láni frá bank­an­um.

Í dómi Hæsta­réttar um ákvörðun refs­ingar segir m.a.: „Hátt­semi ákærðu sam­kvæmt þessum köflum ákæru fól í sér alvar­legt trún­að­ar­brot gagn­vart stóru almenn­ings­hluta­fé­lagi og leiddi til stór­fellds fjár­tjóns. Brotin sam­kvæmt III. og IV. kafla ákæru beindust í senn að öllum almenn­ingi og fjár­mála­mark­að­inum hér á landi í heild og verður tjón­ið, sem leiddi af þeim beint og óbeint, ekki metið til fjár. Þessi brot voru stórum alvar­legri en nokkur dæmi verða fundin um í íslenskri dóma­fram­kvæmd varð­andi efna­hags­brot.“

Allir hinir dæmdu utan við Magnús Guð­munds­son hafa hafið afplánun á dómum sín­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None