Ólafur Stephensen svarar Ara Edwald - „málflutningur sem dæmir sig sjálfur“

13223523394_c752e6b142_z.jpg
Auglýsing

„MS (Mjólk­ur­sam­salan) var beðin um gögn en afhenti ekki Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu gögn sem voru til. Við mál­flutn­ing fyrir áfrýj­un­ar­nefnd komu ekki fram hald­bærar skýr­ingar á því að gögn­unum hefði verið leynt fyrir stjórn­vald­inu. Það er nú til rann­sóknar hvers vegna gögn­unum var leynt. Mál­flutn­ingur for­stjóra MS dæmir sig sjálfur í ljósi þess­ara stað­reynda máls­ins.“

Svo hljóðar frétta­til­kynn­ing sem Ólafur Steph­en­sen fram­kvæmda­stjóri Félags atvinnu­rek­enda sendi fjöl­miðlum síð­degis þar sem hann bregst við ummælum Ara Edwald for­stjóra MS á dög­un­um, þar sem hann sak­aði Ólaf um rætnar ásak­anir og víta­verð ummæli með því að halda því fram að MS hefði leynt Sam­keppn­is­eft­ir­litið gögn­um við rann­sókn á meintum sam­keppn­islaga­brotum Mjólk­ur­sam­söl­unn­ar.

Samn­ingur sem ekki kom fram við rann­sókn máls­ins



Í frétta­til­kynn­ing­unni sem Ólafur sendi í dag vitnar hann til til­kynn­ingar frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu frá því í des­em­ber þar sem fram kemur að MS hafi lagt fram samn­ing við með­ferð máls­ins hjá áfrýj­un­ar­nefnd sam­keppn­is­mála, sem aldrei leit dags­ins ljós við rann­sókn eft­ir­lits­ins á meintum brotum MS, þrátt fyrir að ítrekað hafi verið óskað eftir öllum gögnum tengdum mál­inu.

Þá vísar Ólafur til úrskurðar áfrýj­un­ar­nefnd­ar­inn­ar:

Auglýsing

„Þótt ekki hafi komið hald­bærar skýr­ingar á því hjá áfrýj­anda hvers vegna bæði samn­ing­ur­inn hafi ekki verið lagður fram við með­ferð máls­ins hjá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu né grund­vall­ar­gögn um efndir hans og upp­gjör hjá áfrýj­un­ar­nefnd­inni telur nefndin sér skylt á grund­velli rann­sókn­ar­reglu stjórn­sýslu­réttar að koma mál­inu í þann far­veg að upp­lýst sé um þessi atriði. Við munn­legan mál­flutn­ing skýrð­ist málið ekki frekar að þessu leyti. Við svo búið telur áfrýj­un­ar­nefndin sér ekki unnt að taka efn­is­lega afstöðu til máls­ins. Verður því ekki kom­ist hjá því að ógilda hinn kærða úrskurð Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins og leggja fyrir eft­ir­litið að taka á ný afstöðu til máls­ins að und­an­geng­inni frek­ari rann­sókn og að fengnum sjón­ar­miðum er varða þýð­ingu samn­ings­ins á milli áfrýj­anda og KS frá 15. júlí 2008, upp­gjöri á milli aðila hans og efndum á því tíma­bili sem meint brota­starf­semi stóð yfir.“

Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur því tekið málið aftur til með­ferð­ar, en FA hefur óskað eftir því að máls­með­ferð­inni verði hrað­að. Á meðal þess sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið rann­sakar eru ástæður þess að umræddur samn­ingur var ekki lagður fyrir eft­ir­litið við rann­sókn máls­ins, en við­ur­lög geta legið við því að halda upp­lýs­ingum frá eft­ir­lit­inu við rann­sók máls.

Þá skrifar Ólafur að end­ingu: „Um þetta þarf ekki að hafa mikið fleiri orð. MS var beðin um gögn en afhenti ekki Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu gögn sem voru til.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None